Nýjar kvöldvökur - 01.03.1907, Síða 6

Nýjar kvöldvökur - 01.03.1907, Síða 6
78 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. hvað það ruggaði þunglamalega. Hásetarnir hömuðust við dælurnar heiia klukkustund, og svo var mælt í dælunni — átta fet. Skipshöfnin sagði ekki berum orðum, að hún vildi ekki dæla lengur; en það sást ofur- vel, hvað þeir höfðu í hyggju, því að hver og einn af þeim tók þegjandi skyrtu sína og treyju, sem þeir höfðu afklæðst, þegar þeir byrj- uðu, og fóru í þær aftur. «Hvað á nú að gera, Osvald?» spurði Ingram skipstjóri og gekk aftur eftir; «þér sjá- ið sjálfur að hásetar vilji ekki dæla lengur — enda væri það ekki til nokkurs hlutar. Við erum frá.» «Já, «Sérkessamærin» er frá, það er eg hræddur um,» svaraði stýrimaður, «það er ekki til neins að dæla lengur. Við verðum því að treysta á bátana, og eg held þeir séu allir ó- skemdir, og yfirgefa hana svo áður en nótt- in dettur á.» «öfhlaðnir bátar í annari eins kviku og nú er!» sagði Ingram skipstjóri og hristi höf- uðið raunalega. «Já, það eru vandræði, það kannast eg við, en það er þó betra en sjórinn sjálfur. Alt sem nú er hægt að gera, er að reyna að halda hásetunum ófullum, og ef það tekst, er það betra en að vera að ofþreyta þá til einskis. F*eir munu hafa allra sinna krafta þörf áður en þeir setja fót sinn á þurt land aftur, — ef það annars lánast nokkurn tíma. Á eg að tala við þá?» »Já, gerið þér það, Osvald,» svaraði skip- stjóri; fyrir sjálfum mér ber eg engan kvíðboga, það má guð vita— en konan mín — og börn- in mín — .» «Piltar,» sagði Osvald, og gekk fram á til hásetanna, sem höfðu beðið daprir og þeg- jandi eftir úrslitunum, «að láta ykkur vera að dæla lengur væri ekki til annars, en ofþreyta ykkur, og gerði ekkert gagn. Nú verðum við að treysta á bátana, og góður bátur er betri en lélegt skip. En þessi kaldi og kvika er enn of úfinn til þess, að bátunum sé fært. Rað er því réttast fyrir okkur að reyna að lafa á skipinu á meðan við getum, og treysta á misk- unsemi guðs og okkar eigin krafta.» »Enginn bátur ber af þennan sjó,« sagði einn hásetanna; «eg er nú á, að við eigum stutt eftir, og þá er jafngott að reyna að gera sér það glatt. Hvað segið þið, piltar?» bætti hann við og sneri sér að hásetunum. Nokkrir þeirra voru á sama máli; en Os- vald gekk fram, þreif eina öxina, sem lá þar í grend við, gekk að hásetanum sem talað hafði, hvesti á hann augun og mælti: «WilIiams, stutt líf getur það vel orðið, sem okkur er afskamtað, en ekki glatt; eg skil vel hvað þú áttir við með því, sem þú sagð- ir. Illa félli mér það, að bera blóð þitt eða annara manna á höndum mér, en, svo sannar- lega, sem guð er uppi yfir okkur, skal öxin ríða í höfuð þeim, sem fyrstur myndar sig til að brjótast inn í brennivínskjallarann. Þið vitið vel að eg geri aldrei að gamni mínu, Svei, skammist þið ykkar! Kallið þið ykkur menn, sem vinnið það til fyrir sopakorn af rommi að missa af einu líkindunum, sem eru til þess að mega drekka ykkur fulla á hverjum einastadegi, þegar þið komið á land? Sérhvað hefir sína tíð, og nú er eg á því, að það sé tími til að vera ófullur.* Rar eð flestir hásetanna voru Osvalds megin, varð minni hlutinn að láta undan; svo fóru þeir þá að gera viðbúnað til þess að geta farið frá skipinu. Tveir bátarnir á stokk- unum reyndust í góðu lagi. Nokkrir af háset- unum voru settir til þess að höggva borðstokk- ana frá, til þess að geta hleypt bátunum út af þiljunum, því að engin ráð voru til að draga þá upp. Dælan var enn mæld; það var nfu feta vatn í skipinu, og skipið var auðsjáan- lega komið að því að sökkva. Tvær stundir voru liðnar, og stormurinn var miklu vægari enn áður. Sjórinn hafði orðið mjög úfinn, þeg- ar veðrið gekk til, en nú var öldufallið farið að gerast reglubundnara. Alt var í lagi; þegar hásetarnir voru koninir að vinnu fóru þeir að jafna sig aftur, og vonirnar fóru að lifna við það, seni breyttist til batnaðar— að vcðrið var

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.