Nýjar kvöldvökur - 01.02.1908, Síða 12

Nýjar kvöldvökur - 01.02.1908, Síða 12
36 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. Hann ætlaði á eftir henni inn í turnherberg- ið ... En í sama bili tók þakið að hristast undir fótum þeirra, það heyrðust kylfuhögg og brestir og brak í hurðum og trjám. Angistar- hljóð heyrðust neðan úrgarðinum. Svo heyrð- ist mikið fótaspark og glaumur af mannamáli, bölvi, ragni, bænum og kveinstöfum skelkaðra kvenna. Hermennirnir höfðu brotið upp norð- urhliðið, og voru komnir inn í húsið. Júda flaug í hug, að þeir mundu vera að leita hans. Hann vildi flýja — en hvert var að flýja? Væng- ir, og annað ekki, hefði getað borgið honum. Tirza var afmynduð af skelfingu, kipti í hand- legg honum og sagði: «Hvað er þetta, Júda, hvað er þetta?« Hann svaraði engu; hann heyrði hvernig vinnufólkið var brytjað niður, og hún móðir hans? . . . Var þetta ekki málrómurinn henn- ar? Hann reif sig upp og sagði. «Bíddu hérna á meðan, Tirza, eg ætla að skreppa ofan, og sjá hvað um er að vera —eg kem undir eins aftur.» Rótt hann bæri sig að vera rólegur var hann samt skjálfraddaður. Tirza hélt æ fastara og fast- ara f hann, hærra og hærra heyrðist til móður hans —rödd hennar glumdi við skerandi. Hann hikaði ekki lengur; «komdu þá með ofan« sagði liann, «við skulum fara ofan.» Veggsvalirnar við riðið voru fullar af her- mönnum. Aðrir hermenn þutu út og inn um stofurnar með brugnum sverðum. Út í einu horninu lá hópur kvenna, hnipraði sig saman og baðst vægðar. Spottakorn þaðan var kven- maður einn í áflogum við dáta, og reyndi að slíta sig lausa af honum, og varð hann að neyta allrar orku til þess að missa hana ekki. Föt hennar voru öll rifin og tætt, hárið hékk í flyksum ofan fyrir andlitið; hún æpti svo hátt að tók yfir allan annan skarkala. Júda stökk til hennaríeinu vetfangi. «Móðir mín, móðirmín,» æpti hann upp; hún rétti hendurnar út á móti honum; en rétt þegar hún var að ná í hann var henni slengt til baka, ogjúda heyrði rödd eina kalla upp: íRarna er hann.« Hann sneri sér við og sá Messala. «Hvað ? drengurinn sá arna, hann er eng- inn morðvargur líklega» spurði einn lífvarðar- foringjanna. «Biddu guðina um þig« svaraði Messala, «það þarf held eg ekki aldurinn til að verða djöfulóður af hatri! Pað ei hann, og þarna er hún móðir hans og hún systir hans — alt hyskið.« »Júda gleymdi óbeit sinni á æskuvini sín- nm, af því að hann var svo hræddur um móð- ur sína og systur, og mælti: »HáIpaðu 'þeim, Messala, eg bið þig sökum fornrar vináttu okk- ar á milli — taktu þær í vernd þína.» Messala lézt ekki heyra það. Hann leit ekki við Júda, en sagði við undirforingjann: «Eg er ekki að neinu liði hér lengur, en nóg víst að gera úti á strætinu. Eros er dauður, Marz lifi.« Með það fór hann. Júda skildi hann. Og með beiskum huga bað hann til guðs með sjálfum sér: »Þegar hefndin kemur frá þér, ó drottinn, þá láttu hana koma frá minni hendi.« Svo ruddi hann sér fram til herforingjans. »Herra» sagði hann, «þessi kona er móðir mín; vægðu henni — og vægðu systur minni, sem þarna stendur; guð er réttlátur, og mun láta miskun mæta miskun.» Pað var eins og foringinn fyndi til með hon- um. «Upp í turninn með konurnar* kallaði hann «og ábyrgist mér að þeim verði ekkert mein gert.» Svo mælti hann til þeirra, er stóðu og héldu Júda: »Fáið bönd, og bindið hendur hans, og farið með hann ofan í garðinn; hann skal eigi sleppa hjá refsingu.» Móðirin var borin burt; Tirza gekk viljug með hermönnunum, örvilnuð og utan við sig af hræðslu, eins og hún var í morgunfötun- um. Júda horfði á eftir þeim, ogtók svo hönd- um fyrir andlit sér. Ef til vili hefur hanngrát- ið. Að minsta kosti var það víst, að þegar hann leit upp aftur, var hann eigi lengur ung- lingur —hann var orðinn fullorðinn. Niðri í garðinum var þarin bumba. Her- inennirnir á svölunnm hröðuðu sér ofan. Sum-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.