Nýjar kvöldvökur - 01.02.1908, Blaðsíða 23
BÓKMENTIR.
47
Bókmentir.
Meðal rita þeirra, er út voru gefin á næst-
liðnu ári, er enn ógetið allmargra, og mun eg
minnast þeirra smásaman í riti þessu eins og
áður.
Bernskan heitir smábók ein, er út hefir kom-
ið hér á Akureyri. Höfundur hennar er skóari
einn hér í bænum, Sigurbjörn Sveinsson að
nafni; hefir hann áður gefið út ljóðakver eitt
lítið með laglegum kvæðum. En ekki var mik-
ið samt tekið eftir þeim — það er orðið svo fult
af þessum kvæðasöfnum, að eigi ber á öðru
en því, sem að einhverju leyti ber af. En öðru
máli er að gegna um þetta kver. Það er alls yfir
35 smásögur frá bernskuárum höfundarins, ali-
ar sannar, og allar sagðar eins og barnasögur.
Víða er efnið lítið, jafnvel svo lítið, að engum
nema höfundinum hefði getaðdottið í hug að
gera úr því sögu. En honum tekst að gera
úr því sögu, svo að maður hefir gaman af að
lesa hana, og hnýtir hann þá oftast einhverri
hugleiðingu eða einhverri athugasemd við efn-
>ð, sem getur verið til lærdóms, upphvatning-
ar og eflingar einhverju, sem fagurt er og gott.
Sumar sögurnar eru aftur á móti ágætar að
efnis; þó að það sé að jafnaði smátt, þá er þó
svo með það farið, að menn fylgja því með
fnlium áhuga. Sumar sögurnar bera á sér töluvert
guðrækilegan blæ, enda er höf. alkunnur trú-
maður, en blærinn er svo einfaldur, Ijúfur og
Þýður, að áhrifin af því hljóta að vera góð
á alla, hvort sem þeir eru trúaðir eða ekki.
Aftur á móti ríkir í sumum svo mikil kýmni,
svo mikil græskulaus, lifandi barnakæti, að það
lyftir manni hátt upp úr öllu þessu »ergelsi»
yfir lífinu og tilverunni, sem nú er «hæstmóð-
*ns« að bera á bprð meðal hinna yngri höf-
nnda lands vors. »Skemtileg nótt», «Yfir
ana» og »Réttardagurinn > eru hver annari betri,
barnalegar og kýmilegar, ekki að gleyma því
Þegar »Steini grætur« undir lestrinum. Málið
er gott og lipurt, en ef til vill eru sögurnar
fremur ritaðar handa fullorðnum heldur en
börnum. Það er sumstaðar full mikill skáld-
sögublær á efnisfærslunni. Enn það gerir ekki
til. Kverið hefir þegar unnið sérland og það
víða, og líklegt að það geri það því betur sem
lengra líður. Von er á meiru frá höf., og
bíða þess rnargir með óþreyju. Það bendir
bezt á það, að bókin er góð.
Lítið kver hefir og Oddur Björnsson gefið
út: Smásögur handa börnum. Kver þetta er
Iaglegt að efni og frágangi; eru sögurnar allar
útlagðar eftir útlendum ævintýrum handa börn-
um, og er það heldur laglega gert.
Smásögur handa börnum og unglingum
hefir og sr. Hjörleifur prófastur Einarsson gefið
úr í Reykjavík; þær eru útlagðar eftir smásögu-
safni eftir Moody, hinn nafnkunna predikara.
Allar eru sögur þessar guðrækilegs efnis, og
og má leiða út af þeim öllum einhverja sið-
ferðislega eða guðfræðislega lærdóma. Geta
þær því oft verið hentugar til þess að hafa
við hendina sem skýringu við ýmislegt í barna-
lærdóminum. Sögurnar eru góðar og glæð-
andi alt gott, og málið á þeim látlaust og
einfalt.
F*á er og nýbyrjuð að koma út lesbók
handa barnaskólum, sem nefnd sú hefir út gef-
ið, er til þess var kosin af stjórnarráðinu. Rað
er fyrsti parturinn, sem út er kominn. Eigi
verður enn að fullu dæmt uin lesbók þessa,
en svo virðist, sem hún fari fremur vel af
stað að mörgu leyti. Efni hennar er allmarg-
breytt, og er margt af því vel við barnahæfi.
En sumt virðist vera í þyngra lagi, einkum að
orðalagi til, handa börnum, sem eiga að hafa
hana sem fyrstu lesbók. Utgefendurnir hafa
t. d. ekki leyft sér að breyta orðalagi á því,
sem þeir hafa tekið eftir aðra, enda þótt óvana-
leg orð sé í þvi — sem lesbókaútgefendur
meðal annara þjóða gera að jafnaði, En alt
fyrir þetta er bókin efnileg til þess að ná sér
hylli meðal unglinga hér á landi. Nokkrar
rhyndir eru í bókinni gerðar eftir Ijósmyndum af
málverkum Ásgríms Jónssonar málara. Málverk-
in eru vafalaust góð, og lesin með góðum
skilningi út úr þjóðtrú landsmanna, en eigi eru