Nýjar kvöldvökur - 01.01.1915, Blaðsíða 7

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1915, Blaðsíða 7
5 HVERJUM ER UM AÐ KENNA. með heijarafli sarmfieringarinnar um það, að hann gæti ekki orðið það, sern honum var ætlað. En svo einn góðan veðurdag slitnaði upp úr þessari vináttu drengjanna. Rað leriti í á- flogurn í svefnloftinu, og kennarinn, sem hafði umsjón þar, varð fyrir því óhappi að fá glóð- arauga. Frans Godmann, frískólasveinninn, hafði verið langt frá því að láta verst í þetta skiftið, en samt var hann rekinn úr skólanum. Hann hvarf aftur til Parísar og lét aldrei frá sér heyra, °g svo fyrntist yfir þetman gamla vin í huga Chretiens, bezta vininn hans, Parísardrenginn með góðlátlegu augun, sem alténd hafði skilið eftir smáfugla, hnoðaða saman úr brauði, við sæti sitt í borðsalnum. Um síðir óx svo Chretien upp og varð full- orðinn maður, hræðilega þegjandalegur og ein- fara eftir þessi mörgu, löngu, þungbæru, hörmu- lega leiðinlegu ár, bæði heima og í skólanum. A stúdentsárunum hafði hann nú reyndar tals- vert meira frelsi —en hvaða gagn var að því? Þótt Lescuer undirdómari væri stóréfnaður mað- Ur, fanst honum að fimm frankar á viku væru meir en nóg til skemtana handa ungum manni, sem fyrst væri að spretta grön. Nokkrum sinn- um hafði Chretien látið leiðast til þess að fara í eitthvert svall með félögum sínum, og hugs- aði hann altaf til þess með viðbjóði eftir á; en út úr því varð hann að kannast við það fyrir föður sínum, að hann væri í eitthvað fimtíu franka skuldum; en þá hélt þessi strangi og úgjarni embættismaður svo magnaða skamma- ræðu yfir honum, eins og hann hefði brotizt mn í íbúðarhús að nóttu til og stoiið. Chret 'en sárskammaðist sín og varaðist úr því hvert tækifæri til að eyða peningum, hélt sér fjærri félögum sfnum og sökti sér niður í námið til þess að bæla niður alla innri órósemi. Eintia úlskárst leið honum, þegar hann gekk út ein- samall og sökti sér niður f hugardrauma. Hann hataði heimilið sitt, þetta sýkisþrungna, dapur- lega hús í Carmengötu. Honum fundust mosa- vöxnu andlitsgrímurnar ygla sig framan í hann °g brunnholan bjóða honum að drekkja sér niðri í honum eða að hengja sig í brunnfær- inu. Og þegar hann sat við neðri borðsendann í einu af þessum boðveizlum, þar sem faðir hans í hvítu hálslíni virtist vera að leika kapp- leik við önnur hvít hálstín, sem voru alveg jafnísköld og leiðinleg eins og hann, þá hugs- aði þessi aumingja ungi maður með óhug til þess, ef hann ætti alla æfina að verða múrað- ur inní í svona lífi, og þá lá við að grátstafur kæmi upp í hálsinum á honum. Annanhvern sunnudagsaftan fóru þeir Lesc- uyer undirdómari og sonur hans í heimsókn til frú Léger-Taburet, sem átti fallegt hús í Kanúkagötu. Hún var ekkja eftir dómara, sem hafðiverið háskólabróðir hr. Lescuyers, og höfðu þeir þá í sameiningu hlaupið nokkur gönuskeið. Undirdómarinn hafði þó einusinni verið dálítið brot af ungum manni, áður en hann gaddfraus í íshálslíninu eins og forsögufíll í Síberíu, verið eitthvað dálítið ungur og haft gaman af að binda pjáturkaltaræfla við skott á flökkuhund- um og líma klukkustrengi fasta við múra. En þetta var alt löngu liðið og löngu gleymt. Pað eru til þeir menn, sem æskan hleypur upp í snöggvast líkt og barnakvillar, eins og misling- ar og skarlatssótt. En það stendur ekki nema stutt og steingleymist svo. Tvítugasta árið hafði verið eins og veikindakast fyrir þessa tvo vini, afleiðingalaust með öllu. Skömmu síðar höfðu þeir svo komizt í röð með fullorðna fólkinu og gifzt, og Léger-Taburet, sem var glaðlynd- ari, hafði meir að segja valið sér stúlku fyrir hygginda sakir, sem var talsvert eldri en hann og átti forríkan föður. Pegar hann var búinn að berjast við svefninn uppi í réttinum í tutt- ugu og fimm ár, sofnaði hann alt í einu til fulls á fimtugasta aldursári án þess að láta eftir sig börn; og ekkja hans, sem nú var orðin gömul kona, bjó alein með barnabarni systur sinnar, Kamillu Letourneur, bráðungri stúlku, sem átti að erfa hana, og var því líkleg til að verða einn af beztu kvenkostunum í Calvados. Sparsemi er álitin alira dygða dýrmætust í Normandí, og það þó að hún sé rekin svo langt, að gangi nízku næst; en frú Léger-Ta- buret hafði samt það orð á sér meðal betra

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.