Nýjar kvöldvökur - 01.01.1915, Blaðsíða 12

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1915, Blaðsíða 12
10 NÝIAR KVÖLDVÖKUR. un til að leita huldra fjársjóða. Rað var líka einn daginn, að þessi þrá greip Tuma með öllu sínu ofurafli; fór hann þá strax á stað að leita uppi einhvern dreng, er vildi slást í félag við hann. Hann ætlaði fyrst að ná í Jóa Harp- er, en hann fann hann hvergi; fór hann þá til Benna Rogers, en hann var þá á fiskiveiðum. Þá rakst hann fyrir hendingu á Huck Finn, og þar eð ekki var nú á betra völ, ásetti hann sér að réyna að fá hann í félagsskap með sér, leiddi hann á eintal og útskýrði fyrir hon- um fyrirætlun sína. Huck var fús til þessa, eins og yfirhöfuð til allra þeirra fyrirtækja, er veru- leg voru til æfintýra, en einkis fjárframlags kröfðust, því af þeim tíma,, sem ekki eru pen- ingar, bafði Huck altaf nóg. »Hvar eigum við svo að grafa?« spurði Huck »lJað er alveg sama hvar er.« »Hvað segirðu? Eru fjársjóðir fólgnir al- staðar, hvar sem vera skal?« »Nei, að vísu er það ekki, en þeir finnast á öllum merkari stöðum, svo sem á eyðieyjum; en stundum eru þeir huldir við rætur gamalla trjáa, nákvæmlega þar sem skuggi þeirra fellur á um miðnætti. Oftast finnast þeir þó undir húsum, sem reymt er í.« »En hverjir fela þessa fjársjóði ?« »Retta er gáfulega spurt! Hverjir heldurðu að feli þá nema ræningjar. Heldurðu kanske að kenuarinn við sunnudagaskólann holi þeim niður?« »Það held eg geti vel verið. Eg veit bara það, að eg myndi ekki grafa njður skildingana mína, ef eg ætti nokkra. Eg held eg hefði þá í velturni á meðan þeir entust og lifði í glaum og gleði. En hvar eigum við að grafa?« »Mér lízt bezt á að byrja hjá föllnu trján- um þarna við Iækinn.« »Er þá fjársjóður hulinn þar undir hverju tré?« »Altaf ertu jafnvitur! Eg held það sé nú síður en svo.« »Eri hvernig veiztu þá, hvort þú grefur und- ir réttu tré?« »0, við reynum við þau öl!!« »Pað er ómögulegt. Okkur endist varla samarið til þess.« »Hvað gjörir það til! Ef við fyndum svo kanske gamlan koparketil með hundrað spegil- fögrum krónupeningum, eða fúinn kassa, full- an af gimsteinum; ætli þér þætti af því?« Rað leiftruðu í Huck augun: »Já, þá væri ekki til einkis barizt! Láttu mig þá fá krón- urnar, en þú mátt eiga gimsteinana fyrir mér.« »Mikið fádæma erkifión geturðu verið! Veiztu það ekki að einn gimsteinn getur kan- ske verið meira en hundrað króna virði. Kóng- arnir eiga þá í skéffutali!« »það veit eg ekkert um. Eg þekki enga kónga!« »Rví get eg vel trúað, en þú ættir að koma einhverntíma til Evrópu; þar fengirðu að kom- ast í kynni við þá karla. Reir hoppa þar fyrir handan í tugatali.r »Nú, hoppa þeir þar?« »Ónei, villingurinn þinn, sem ekkert skilur.« »Rví ertu þá að skrökva í mig?« »Eg átti bara við að þú gætir séð þar nóg af þeim —ekki samt hoppandi —, því þeir eru engir hrafnar, en þeir eru þar á víð og dreif með vissu millibili: Hefurðu ekki t. d. heyrt getið um hann Richard gamla með kryppuna?« »Hvaða Richard? Eitthvað hefir maðurinn heitið meira!« »Nei, því kóngar hafa aldrei neitt ættar- nafn.« »Rað var skrítið!« »Pað er nú svona! þeir ganga aldrei nema undir einu nafni.« »Jæja, þeir um það! En eg segi bara fyrir mig, að eg kærði mig ekki um að vera kóng- ur upp á það að láta kalla mig altaf einu nafni, rétt eins og hvern annan svertingjaræfil. En hvar eigum við að byrja á leitinni ?« »Eg veit ekki. Hvað segirðu um það að við byrjuðum hjá fúna trénu þarna á hæðinni fyrir ofan Draugahúsið?* »Pú um það.« Fégraftramennirnir náðu sér nú einhver-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.