Nýjar kvöldvökur - 01.01.1915, Blaðsíða 11

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1915, Blaðsíða 11
HVERJUM ER UM AÐ KENNÁ 9 iuni. En þótt þetta væri hátíðleg stund, þá fagnaði Chretien því innilega, þegar hann fann að lestin var að fara og vagninn var að síga af stað. En lítilii stundu síðar, þegar stengurn- á turnum st. Stefánskirkjunnar og digru turnarnir á nunnuklaustrinu voru að hverfa að fullu í þokuna, varð hann gripinn af djúpri hfygð; honum varð bilt, og hann bar upp fyrir sjálfum sér þá spurningu, hvort hjarta hans væri þá úr steini, fyrst hann gat fengið sig til að yfirgefa alls óviknandi þann mann, sem hann altaf hafði hræðzt, en var þó engu að síður faðir hans, og þennan bæ, sem ekki geymdi honum eina einustu gleðisæla minn- ingu, en var þó engu að síður fæðingarbær hans. Og alt í einu fanst honum eins og skýin í loftinu fengju á sig mannsandlit, eins og grímu- myndirnar uppyfir gluggunum heima, og þau störðu á hann heiftaraugum og óskuðu honum alls ófarnaðar á leiðinni. Meira. Sagan af honum Tuma litla. Efir Mark Twain. XX. Aftur hafði Tumi náð hylli og dálæti allra þorpsbúa, og þeir voru margir, sem fullyrtu, að hann myndi áreiðanlega hafna sig í forsetastól Bandaríkjanna, ef ekki yrðí búið að hengja hann, þegar til þess kæmi. Hinn hverflyndi og heimski heimur tók Muff Patter nú upp á arma sér, og hafði á honum jafnmikla dáleika eftir þetta, eins og hann hafði verið honum illur áður. En svona gengur það. Dagarnir liðu nú fyrir Tuma í dýr- legum fígnaði og gleði, en næturnar voru hon- sannkallaðar neyðarstundir. Indíana-Jói gekk Ijósum logum í öllum draumum hans og gat að iesa blóðuga hefndina út úr svip hans. Tumi fékst nú heldur ekki til að fara út á hvöldin eftir að skyggja tók, hvað sem í boði yar. Veslings Huck var nærri því eins illa staddur, því kvöldinu áður en dóminn skyldi upp kveða yfir Patter, hafði Tumi sagt verj- anda hans alla söguna; var því Huck altaf skjálfandi af kvíða fyrir því, að hluttaka hans 1 þessu yrði brátt gjörð heyrum kunn, þó flótti Jóa gjörði það að verkum, að hann þurfti ekki að bera vitni fyrir réttinum. Veslings dreng- urinn fór til verjandans og bað hann með tár- in í augunum að þegja; lofaði verjandinn því, en Huck bar nú svo lítið traust til mannanna, síðan Tumi rauf þagnareiðinn, að hann þóttist litlu bættari með þessu loforði, þó það væri reyndar betra en ekkert. Tumi var bæði glaður og stæriláfur yfir þessu afreksverki, en þó um leið hræddur við afleiðingarnar, því þess þóttist hann fullviss, að hann mætti aldrei um frjálst höfuð strjúka, fyr en Indíana-Jói væri dauður. Pað var auð- vitað búið að leggja fé til höfuðs honum og leita hans um alt héraðið, en hann fanst hvergi. Pá var skrifað til St. Louis eftir einu af þessum alvitru og ægilegu furðuverkum náttúrunnar, sem kallast leynilögregluspæjarar. Spæjari þessi gekk snuðrandi um héraðið, hristi að því búnu höfuðið ærið íbygginn. Árangurinn af snuðri hans varð jafnlítill og vant er að vera hjá flest- um stéttarbræðrum hans, sem sé sú, að hann kvaðst nú vera búinn að hafa upp á »lyklin- um að leyndarmálinui! En með því að ómögu- legt er að áklaga, dæma eða hengja lykil fyrir morð eða aðrar sakir, fanst Tuma, að hann væri engu óhultari um líf sitt en áður. XXI. Pað mun einhverntíma koma fyrrir hvern dugandi dreng, að hann fái óviðráðanlega löng- 2

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.