Nýjar kvöldvökur - 01.01.1915, Blaðsíða 19

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1915, Blaðsíða 19
HÁTTPRÚÐA STÚLKAN. 17 »En barn, vertu óhrædd, eg skal sannar- lega taka þig að mér, og búa þig svo, að þú komir ekki undarlega fyrir sjónir.* »Kem eg svo undarlega fyrir,« sagði Polly og hnykti við, vonaði þó að hér væri eigi átt við neitt slæmt. »Þú ert svo góð og enn fallegri en í fyrra sumar, en þú hefir þó fengið annað uppeldi en við hinar og því ertu ólík okkur, geturðu ekki skilið þetta?« sagði Fanny, sem átti dálít- ið erfitt með að koma orðum að því sem hún vildi segja. »í hverju liggur mismunurinn?« spurði Polly, sem óskaði eftir að fá fulla skýringu í þessu máli. »Meðal annars að þú ert búin eins og lítil stúlka.« »Já, en eg er nú ekki annað en lítil stúlka, og því ætti eg svo sem að klæða mig öðru- vísi,« sagði Polly, og vissi eigi hvaðan á sig stóð veðrið. »Pú ert orðin 14 ára, og þegar við erum komnar á þann aldur, skoðum við okkur eins og dömur,« sagði Fanny og skoðaði sjálfa sig með ánægju í speglinum. Hún horfði með velþóknun á vel uppsetta, kippaða hárið sitt, eyrnahringa, úrfesti, fingurgull og annað gling- ur, sem hún hafði skreytt sig með. Polly horfði ý.uist á vinstúlku sína eða sjálfa sig, og duldist henni ekki að allur búnaður Fannyar var langtum íburðarmeiri en hennar. Hún varalin upp oghafði stöðugt átt heima í kyr- látu sveitaþorpi og þekti lítið sem ekkert til haupstaðarlífsins. Hún hafði aldrei fyrri komið á hið skrautlega heimili Fannyar, því kunn- ■ngsskapur þeirra hafði myndazt við það, að Fanny hafði heimsótt fjölskyldu.í nágrenni við Polly, og þar höfðu þær kynzt. Polly fékk nú brátt glaðværð sína aftur og kærði sig kollóíta, þótt mikill munur væri á klæðaburði hennar og Fannyar, og sagði síðan hlæjandi: »Mamma mín vill ekki að eg hafi íburðar- mikinn og dýran klæðaburð, og mig langar heldur eigi til þes?. Eg mundi heldur eigi kunna að haga mér, væri eg eins búin og þú. Eða gleymirðu aldrei að hagræða öllum þes- um böndum og kjólfellingum, þegar þú sezt niður?« »Áður en Fanny fengi tíma til að svara, heyrðist hljóð neðan frá og stúlkurnar fóru báð- ar að hlusta. »Pað er Maud,« sagði Fanny, » hún glamr- ar eða skælir allan daginn.« Naumast hafði hún slept orðinu, þegar dyrunum var hrundið upp og stúlkubarn á sjötta eða sjöunda ári kom grátandi inn. Hún hætti í bráð, þegar'hún sá Polly, en fór brátt aftur að hrína, fleygði sér upp að Fanny og sagði: »Tumi er að hlæja að mér, láttu hann hætta því.« »Farðu nú inn til Katy,« sagði Fanny, eft- ir að systir hennar hafði skýrt henni frá ein- hverju óverulegu hnotabiti milli sín og hinna krakkanna, »það Iiggur svo illa á þér í dag,« »Katy leikur ekki við mig, og mamma sagði að það þyrfti að gera það, af því eg væri amasöm,* sagði Maud andvarpandi, sem hélt að amasemi væri einhver leiðinlegur sjúkdómur. »Nú förum við ofan að borða miðdegis- matinii,* sagði Fanny og lyftist til eins og fugl sem ætlar að taka sig á flug. Polly vonaði að Tumi yrði ekki við borð- ið, en hann var þar þó og glápti á hana lengst af meðan á máltíðinni stóð. Herra Shaw, sem virtist hafa um margt að hugsa, sagði við Polly: »Hvernig líður þér góða mín, eg vona að þú skemtir þér hér ve!,« svo var eins og hann gleymdi nærveru hennar. Frú Shaw, fölleit og og taugaveikluð kona, heilsaði vingjarnlega litla gestinum, og sá um að hún fengi nóg að borða. Gamla frú Shaw, hæglát kona í gríðar- stórri kápu, hrópaði upp, þegar hún sá Polly: »En hvað hún líkist henni móður sinni—þess- ari ágætiskonu. Hvernig líður henni, góða mín?« Og hún hélt áfram að stara á PoIIy yfir gleraugun þangað til hún misti matarlyst- ina. Fanny talaði vítt og dreift um ýmislegt, en Maud flögraði um fasmikil * frá einum til annars, þar til Tumi kom með þá tillögu að stinga henni inn í skáp. Þetta hafði þær af- leiðingar, að'stelpan var borin organdi út. Katy, 3

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.