Nýjar kvöldvökur - 01.05.1915, Blaðsíða 6

Nýjar kvöldvökur - 01.05.1915, Blaðsíða 6
102 NYJAR KVÖLDVÖKUR. og var að hryðja miklum uppgangi upp úr sér, þegar þeir komu inn. »Þér eruð víst skramhi skitinn núna, hr. Hektor,« sagði leynilögreglan með lubbalegu, viðbjóðslegu brosi; »eg þekki á það; maður kemst seint í bólið á kvöldin og verður svo að rífa úr pípunum á morgnana.« »Já, það gengur nú svona,« svaraði mað- urinn með burstahárið milli tveggja hóstakviða; »eg áset mér á hverju kvöldi að taka ekki nema lítið, einn kaffibolla með konjakki og tvö — þrjú ölglös. En svo hittir maður kunningja sína og situr svo kl. tólf með heilan blaða af töflum fyrir framan sig — af því að hver mað- ur finnur sig skyldan til að gefa einn hring. Kurteisin, Martinot, kurteisin er það, sem steyp- ir mönnunum í glötunina.« Lögregludómarinn drekti þessum spekings- Iega dómi í nýju hóstakasti og fór að spyrja nýkomnu þorparana spjörunum úr. Þeir margendurtóku þetta, sem hefur svo oft verið endurtekið bæði áður og síðan: »Eg var barinn svo mikið að eg flýði að heiman.« Lögregludómarinn ypti öxlum vantrúarlega. »í fangelsið með þá,« sagði hann við þjóninn; »vagninn er til. Af stað með þá.« Péssir smáflækingar voru svo fengnir í hend- ur lögreglumanni ásamt bréfum nokkrum; svo voru þeir hristir og skeknir eitthvað hálfa stund í grautardallinum, unz þeir komu í fangelsis- garðinn um það leyti sem vagnarnir hringinn um kring úr öllum borgardeildum Parísar skila úr sér úrþvætti því, sem þeir hafa safnað í sig að nóttunni til. Vagnarnir námu staðar framan við lágan forsal, sem mjóar dyr lágu inn í; þeir voru lokaðir beggja vegna, þangað til þeir spúðu þar úr sér hinu viðbjóðslega innihaldi eins og sorprenna: beiningamönnum, náttflækingum, fyllisvínum og skækjum. Pað komu á víxl út úr vögnunum farlama karlar í ræflum og tild- urklæddar drósir; þar voru gamlar konur með grátt hár og tállitaðar kinnar og fölir menn með blóðugar neglur. Sumir ungir menn gengu með Iiðað hár og líktust stúlkum. Nærfelt allir reikuðu þeir á vaguriðinu og lögreglan varð að styðja þá, sumir af þreytu og þorsta, sum- ir af ölvímu og sumir af óreglulegu lífi. Lög- reglan hafði tínt þá upp milli kl. eitt og fimm um nóttina í næturknæpum og örgustu vistar- verum, og suma úti við, á bekkjum eða í gatnaræsum, þar sem þeir höfðu velt sér nið- ur til þess að deyja, ef hægt væri, eða láta renna af sér. Flest þetta fólk var viðbjóðslegt að sjá, með sálarlausu augnaráði eða dýrsleg- um andlitum, hvort sem það heldur voru aum- ingjar eða fantar, útþvældir vesalingar eða sví- virðilegir glæpamenn. Pað var aðeins ein und- antekning: barnung stúlka, sem hafði verið tekin við hálfbygt hús, sem hún var að lokka fullan mann inn í; fimtán ára stúlka með lága skó, lélegan pilsræfil og í nátttreyju, öll slett- ótt af gatnafor. Hún hafði engilfagurt andlit og var lífleg eins og rós. Við fangelsisdyrnar stóðu tilsjónarinennirnir, ruddalegir menn, vopnlausir í frökkum með tinhnöppum; þeir tóku í handleggina á föng- unum, svo að segja læstu í þá klónum og drógu þá inn í forsalinn. Par skiftu þeir föng- unum í hópa eftir skipun yfirmanns síns, sem þeir kölluðu »herra«, manns í útslitnum frakka, með úfið hár, rautt hár eins og villisvín undir silfurlagðri húfu. Þeir fleygðu fyllisvínunum í hendingskasti á bekk inst í salnum, þjófunum í þjófahópinn og stúlkunum til stúlknanna. Yf- irþjónninn, sem var kallaður hr. umsjónarmað- ur, gekk í mesta annríki frá einum hópnum til annars. Nætur-París hafði nú tæmt sorptrog sitt og raðað sorpinu niður eins og druslari, sem kemur heim og lætur bein, járnabrot og druslur sitt á hvern stað. Hávaðinn var ófær. Pótt umsjónarmaðurinn væri altaf að öskra: »Þegið þið, fjandans ólæti eru þetta!*, þá var svo mikið fótaspark og suða, óp og óhljóð, að ekki heyrðist manns- mál. Kvenfólkið lét verst og rak upp há hlátra- sköll sín á milli. Gömul, full kerling í stórum kálkerlingabúningi gargaði Ijóta vísu. Og rétt hjá opinberu stúlkunum stóð forstöðukonan fyrir St. Vincentssystrunum í bláuin fötum með

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.