Nýjar kvöldvökur - 01.05.1915, Blaðsíða 7

Nýjar kvöldvökur - 01.05.1915, Blaðsíða 7
HVERJUM ER UM AÐ KENNA 103 hendurnar krosslagðar upp í ermunum og bif- aðist ekki. Úti f horni stóðu fimm eð sex götu- strákar, sem voru teknir fyrir flæking og góndu þeir forviða á alla þessa óttalegu andstygð, sem fram fór í kringnm þá. Úti fyrir heyrðist altaf til vagna, sem lcomu með nýja fanga, og þegar einhver kom inn, sem var með afbrigðum hlægilegur eða við- bjóðslegur, fór taut um allan hópinn. Rar á nieðal kom inn bandóður hálfviti, sem fekk flog; tóku hann fjórir efldir karlmenn og báru hann burt og áttu nóg með. Honum var snar- að inn í stoppaðan klefa. Svo kom hver af öðrum, hver öðrum aumri og andstyggilegri. En flestir voru nú samt skárri. Flest voru gatna- stelpur, fáklæddar og hattlausar, kúskar í gauð- ifnum fötum eftir síðustu áflogin, náfölir slæp- ingar í vinnufötum með húfu, ilt augnaráð og útliti eins og glæpamenn, sem staðnir eru að verki, og stundum listamenn, sem ekki höfðu getað náð fram, þoldu ekki sultinn, með beina- grind af háum hatti á höfði og tætlur að svört- tttn frakka hneptar að horuðum líkama. Loksins hafði umsjónarmaðurinn — réttast nefndur maðurinn með svínshöfuðið og silfur- húfuna — komið skipulagi á alt ruslið. Chretien °g Natóle hafði verið skotrað inn í einhvern hlefa, með tveim öðrum samkynja borgurum, °g það ekki sem mjúklegast; þar voru ekki önnur húsgögn en borð og tveir bekkir; þar var þeim færð tinskál með væinnu súpugutli, sem hefði átt heima í hundahúsi eu ekki manna. Tveim stundum síðar voru þeir leiddir fyr- ■r lögregluréttinn. Lögreglurétturinn er góð og einföld stofn- un í sjálfu sér. A hverjiim morgni eru börn þau, er lögreglan tínir upp af götum Parísar, leidd þar fram fyrir dómara, sem hefur það sérslaka starf á hendi að yfirheyra þau. Pau sem eru orðin fjórtán ára og álitin fær um að hera ábyrgð verka sinna, eru svo send þaðan hl þeirra dómstóla, sem við á. Hin eru leidd fram gagnvart fjölskyldu sinri, ef hún er nokk- Ur til, í viðurvist dómarans, og neyðist hann þá oftlega til að beina áminningu til foreldr- anna. Pessi flækingsbörn eru vanalega vanhirt og illa með þau farið, stundum alveg yfirgefn- ir aumingjar. Svo er barnið aftur fengið for- eldrunum í hendur, nema þau þverneiti að taka á móti því. Ef svo er, eða það á enga for- eldra, er dómarinn skyldur til að senda það á refsingarhús, og hafa það þar þangað til það hefur náð fullveðja aldri. Eg skal bæta því við, að dómarinn í lög- regluréttinum annast starf sitt í mjúklátum og föðurlegum anda. Til þess starfs eru valdir hjartagóðir menn, einhver þessara vönduðu lagamanna, sem veit vel hvaða ábyrgð á hon- um hvílir, menn, sem ráðaneytið álítur heldur gáfnalitla, þorir ekki að hleypa í nein pólitisk flækjumál og hækka aldrei í tigninni. Maður- urinn gerir það sem hann getur. En hvað get- ur hann eiginlega gert? Annaðhvort verður hann að senda barnaumingjann heim til for- eldranna, sem nærfelt allir gefa honum hið versta dæmi til fyrirmyndar — eða það er sent í einhverja svokallaða uppeldisstofnun út í sveit og á að sitja þar í mörg ár; það er einskonar »tukthús« fyrir börn, og gerspillast þau þar með öllu. Og það er fyrir eitthvert smáræði, einhverja yfirsjón, sem það ber ekki ábyrgð á sjálft, jafnvel ekki í augum sjálfs löggjafans. — Eg veit það, að nú á seinni árum hafa komið fram hjartagóðir menn, sem hafa reynt að koma umbótum á þetta gamla ólag. Og maður getur ekki dásamað og blessað þessa velgerðarmenn barnanna eins og vert er. Peir biðja um að fá í sínar hendur þessi siðaspiltu börn, taka þau að sér, koma þeim fyrir hjá góðu fólki, hafa auga á þeim, og hvetja þau til þess sem gott er. En þegar þessi saga gerð- ist, var slíkt varla til, og enn þann dag í dag er það sjaldgæft og hefur náð langt oflítilli útbreiðslu. En lagastafurinn er að engu siður til, og hann er óhæfa. Ef drengur er orðinn fjórtán vetra, er hann dæmdur sem fulltíða maður. Hann er úr því undir hegningaráliti. Seinna, þegar hann er orð- inn hermaður, er hann sendur í sakamanna- liðið.í Algier. Hann er brennimerktur æfilangt.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.