Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Blaðsíða 6

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Blaðsíða 6
126 NYJAR KVÖLDVÖKUR. og horfði á hann óttaslegin, því hún hafði ætíð orðið skelkuð, er hún sá hann með þessum svip. En var ekki réttast að láta skríða til skara einmitt nú, og lofa honum að gera, hvað sem hann vildi? »Eg þykist vita hvers vegna þú vilt að eg fari ekki fyrst um sinn héðan, og á þessari þungbæru stundu er mér það mikil hugsvölun, að þú viðurkennir þá einlægu ást, sem eg ber til Leós,« sagði hún blíðlega, »Lofaðu mér að hafa Leó með mér til Rúdisdorf, Mainan. Eg skai sverja þér þess dýran eið, að eg skal verja öllu lífi mínu fyrir hann, og gæta hans eins og sjáaldurs auga míns. Eg veit að Magnús og Úlrikka munu taka á móti honum með ánægju. Pú getur ekki ímyndað þér, hve margt hann getur lært af þessum göfuglyndu og gáfuðu systkinum mínum . . . Pá getur þú óhræddur farið hvert sem þig fýsir og verið árum saman í burtu. — Lofaðu mér að hafa Leó með mér Mainan!« Húu rétti honum hendina biðjandi, en hann hratt henni hranalega frá sér. »Pað eru áreiðanlega til refsinornin! Mér finst eg sjá þær hlæja allar, hverja einustu! Veiztu hvernig þeim manni er innan brjósts, sem hef- ur verið refsað miskunarlaust fyrir hégómagirni sína, Júlíana? Eg skal segja þér það seinna, þeg- ar tækifæri gefst, en ekki nú, ekki fyrri en....« Unga konan gekk alt í einu þegjandi frá honum; hann sneri baki að veiðimannahúsinu, en þaðan kom hertogafrúin og hirðmær hennar. Til enn meiri skapraunar fyrir Líönu hafði hertogafrúin með arnaraugum sínum tekið eftir hve hranalega Mainan hafði vísað hönd hennar frá sér. Líana gekk þegar á móti konunum með rósaroða í kinnum; henni sást ekki yfir illgirn- islega glottið á andliti hirðmeyjarinnar og hún varð því enn feimnari. »Kæra frú Mainan, því einangrið þér yður svona?« kallaði hertogafrúin með innilegum hlýleik til ungu konunnar. Hún hélt á ávaxta- körfu í hendinni. »Gerið svo vel, þetta skuluð þér fá fyrir blómvöndinn — eg hef tínt þá sjálf,< sagði hún og rétti Lfönu ávextina. Hirðmærin horfði forviða á þetta, — hún var ekki vön að sjá húsmóður sína þakka fyrir sig með slíkum innileik — ef lil vill hefur hún ekki enn vitað að tilfinningaríkar konur, sem hafa unnið glæsilegan sigur, geta verið innilega blíðar við þá sem þær hafa sigrað. »Og nú verð eg aðeins að ávita yður fyrir eitt, kæra unga frú, og það er fyrir það, að þér virðist liafa forðast okkur hingað til. Eg vonast eftir að sjá yður hið bráðasta á heimili mínu,« bætti hún við einstaklega vingjarnleg. »Yðar hátign verður að fyrirgefa, að eg get ekki orðið við þeirri skipun. Mainan legg- ur bráðum á stað í langferð og hann hefur leyft mér að dvelja á meðan á Rúdisdorf,« sagði hún ákveðin. Nú var hún búin að segja það og það með svo mikilli ró, sem henni var unt. »Hvað er þetta, Mainan barón — á eg að trúa þessu?« spurði hertogafrúin með svo mik- illi áfergju og í því uppnáini, að hirðmærin fékk ákafa hóstakviðu út úr yandræðum. »Pví þá ekki það, yðar hátign,« svaraði Mainan og ypti öxlum kæruleysislega. »Rúdis- dorf stendur á mjög fögrum stað og er ágætt heimkynni fyrir þá, sem helzt vilja sökkva sér niður í sjálfa sig. — Varaðu þig, Júlíana, hann rífur fallega kjólinn þinn. Pessi óþektarangi er hreint eins ástfanginn í þér eins og barn, hvað ætli verði um hann, kjánann þann arna, Júlíana? — Leó vill hreint ekki missa hann.« Mainan átti við Leonbergerhund Leós, sem að líkindum hafði verið lokaður inn í veiðimanns- húsinu en sloppið og flaðraði því himinlifandi glaður upp um Júlíönu. Líana beit sig í varirnar. Petta kaldranalega gaman var svar hans upp á beiðni hennar. Augnaráðið, sem fylgdi orðum hans, sá enginn nema hirðmærin; hún sagði hertogafrúnni að í því hefði legið megn viðbjóður, þegar það hefði sem snöggvast leiftrað um »rauðhærðu frúna«. XV. Á meðan þessu fór fram, reikuðu prinsarnir

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.