Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Blaðsíða 37

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Blaðsíða 37
HEÍTIÐ. 157 reynast mjög elskuverð, það sem eftir er sam- kvæmisins.« Hann horfði beint í augu mér. »Gjörið yður eigi mikla fyrirhöfn út af því,« sagði hann þunglyndislega, »því að ef satt er það sem sagt er, ætti eg að vera óhultari, þeg- ar Lady Cicely hleypir brúnum, en þegar hún brosir. Er ekki svo?« Það var eitthvað það í svip hans, sem kom mér til að iðrast eftir ertni minni og breyta um fas. Eg hafði strengt þess heit að hefna mín á Þessum manni og auðvitað hlaut eg að efna heit mitt, en eg óskaði þess aðeins að þessi fjandmaður minn væri ekki eins gjörvilegur og hann var. Það sem eftir var kvöldsins var eg nokkuð astúðlegri en vant var, því að vanalega gjörði eg lítið til að vinna hjörtu karlmanna, en nú ákvað eg að vinna ást Mr. Carruthers. Það var hefnd mín, að fá hann til að fleygja as* sinni fyrir fætur mér og troða hana svo °fan í skarnið, eins og hann hafði gert við mig tyrir þrem árum. Hyernig stendur á því að það er svo miklu h®gra að framkvæma ill áform en góð. Hefði eg ásett mér að vinna ást Mr. Car- uthers í góðum tilgangi, myndi hann ef til vill hafa virzt ósigrandi. Eftir því sem virtist, hafði hann gefist upp við fyrsta áhlaup, og hann reyndi alls eigi að leyna því. Hann leitaði að mér svo allir sáu, var altaf í nánd við mig, reiðubúinn að sinna öllum dutlungum mínum °g talaði við mig með svip og áherzlum, sem ekki gátu bent nema á hið sama. AHar hinar stúlkurnar brunnu auðsjáanlega af öfund, en einkum þó Dolly — hún, sem afði verið svo heppin, eða öllu fremur óhepp- *n að minna mig á heit mitt, sem eg hafði Sjort fyn'r þrem árum, og sem eg ef til vill efði ekki munað eftir að öðrum kosti. Svo dróst að því sem verða vildi. Eg sat inn í lestrarsalnum eitt kvöld og las í bók, þegar Ralph Carruther kom inn. Eg hélt hann væri úti á skotveiðum með félögum sín- um, en þegar hann sá mig leiftruðu augu hans skyndilega. »Þér eruð hér?« kallaði hann. »Eghefverið að leita að yður alstaðar. Eg flýtti mér heim í því skyni að ná tali af yður.« Hann gekk til mín, hallaði sér upp að ar- inbríkinni og horfði á mig. Mér fanst tunga mín vera bundin, og eg horfði stöðugt inn í eldinn á arninum. »Cicely,« sagði hann og lækkaði röddina, »eg hef Ieitast við að ná tali af yður í Iangan tíma, um það, sem liggur mér mest á hjarta. Eg elska yður — og get ekki lýst nógsamlega með orðum hversu heitt eg ann yður. Getið þér gefið mér nokkra von — ófurlitla von um að vinna ást yðar?« Hann var svo fríður og föngulegur, þar sem hann stóð með útrétta arma í áttina til mín, að mér féll allur ketill í eld. Eg hafði heitið að fyrirlíta hann, ef að þessu kæmi, en nú gat eg ekki annað en hrist höfuðið. Hann fölnaði en færði sig þó nær. Orð hans urðu enn heitari og ákafari: »Ó, segið ekki nei, ekki nei,» sagði hann með ákafa. »Reynið að elska mig — það er svo mikils vert fyrir Iíf mitt, fyrir hjarta mitt og sál. Reynið að láta yður þykja ofurlítið vænt um mig!« Hjartað barðist í ákafa í brjóstinu á mér, en því miður kom heit mitt fram milli mín og hans, heitið, sem Dolly hafði mint mig á með háðsglottinu og uppgerðarvináttunni. »Það er ómögulegt,« sagði eg kuldalega, »alveg ómögulegt, eg mundi aldrei geta gifst yður.« Hendur hans féllu máttlausar niður með síð- unum og hann leit á mig undrunaraugum. »Hafi eg gert mér vonir, er það yður að kenna. Þér gáfuð mér ástæðu til þess,« sagði hann hægt og dauflega. Eg sneri mér frá honum til þess að mæta ekki augnaráði hans. »Hefi eg gefið yður ástæðu til þess?« sagði

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.