Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Blaðsíða 14

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Blaðsíða 14
134 NYJAR KVÓLDVOKUR. »En sú prýði!« varð honum að orði. »0, það eru bara dálítið máð litbrigði á ættareinkenni Trachenberganna,« svaraði hún með bitru brosi og ýtti um leið með vinstri hendinni handlegg hans frá sér. Honum hnykti við og hann roðnaði. Hann fann það á hreimnum í orðum hennar, að hún var að bafa eftir honum eitt af því sem hann hafði sagt um hana af ónærgætni, og það var auðséð að hann var að ígrunda hvar hún hefði geíað heyrt þetta til hans. »Eg kom með lækninn, Júlíana, má hann koma inn?« sagði hann eftir stutta þögn. »Eg vil helzt vera laus við það. Á Rúdis- dorf vorum við ekki vön að sækja lækni, þó eitthvað smávægilegt væri að, hann var alt of langt burtu til þess og........« Hún stanzaði alt í einu, til þess að þurfa ekki að játa, að þau hefðu ekki haft efni á að hafa húslækni. »Hreina íindarvatnið hefur gert það að verkum sem með þarf,« bætti hún við. »Hann skal heldur ekki gera þér ónæði með því að skoða á þér handlegginn; mér til mikillar ánægju sá eg, að þú getur þegar skrif- að,« svaráði hann og leit til bréfsins, sem Lí- ana var byrjuð á til Úlrikku. »Eg vil aðeins koma í veg fyrir afleiðingarnar af þessari geðs- hræringu .... eg sá þig rétt áðan titraeinsog espilauf.« Rað Ieit því út fyrir, að hann hefði lengi staðið á bak við dyratjöldin og horft á hana.... Pví var hann alt í einu orðinn svona áhyggju- fullur, og þó hafði hann, þegar slysið vildi til, sýnt henni naprasta kulda og kæruleysi. »Svo þetta er þá ástæðan?« sagði hún og brosti veiklulega um leið og hún sneri sér að honum. »Rað lítur út fyrir að þú sért búinn að gleyma, að eg hef átt við alt önnur kjör að búa í uppéldinu en flestir stéttarbræður mínir — annars væri eg ekki systir Úlrikku eða samverkakona Magnúsar. Eg bið þig enn að láta læknirinn fara heim aftur — hann bíður auðvitað þarna frammi?« Hún bar hratt á síðustu orðin og lagði á- herzlu á þau — hann gat ekki misskilið það, að hún á þennan hátt vildi flýta fyrir «sjúkra- vitjun® hans. »Hann bíður ekki hér fyrir utan og þó svo væri, yrði hann að hafa það — Þessi heiðurs- maður er yfir í garðssalnum og dreypir á borg- undarvíni,« svaraði hann kesknislega og gekk lengra inn í herbergið um leið og hann litað- ist um í því. »Sjáum til! Bláa stofan sem eg hefi í hreinskilni talað ætíð haft svo mikla óbeit á, er orðin furðu ánægjuleg.* Hann leit inn um dyrnar á hliðarherberg- inu, sem stóðu opnar. »Hvar svo sem málarðu, Júlíana, eg sé hér engar myndatrönur — ekki þó vænti eg í barna- herberginu?« »Nei, eg hefi látið útbúa klefann við hlið- ina á svefnherberginu til þess.« »Litlu þröngu kytruna, sem eftir því sem mig minnir, er ekki einu sinni bjart í? Hvern- ig gat þér komið annað eins í hug?« »Eg held að þeir, sem geta skilið helgi- dóma listarinnar séu gæddir fleiri tilfinningar- taugum andlega en — þeim gengur illa að draga andann í samúðarlausu og óvinveittu lofts- lagi,« sagði hún og horfði fast framan í hann. »Og draga sig því í hlé af gremju— það er þó þveröfugt við þær skoðanir, sem eg hef haft um ungar og óreyndar konur. En hvern- ig heldurðu að það fari í vetur. Rað er eng- inn ofn í herberginu.* »í vetur,« endurtók unga konan bæði hrædd og forviða — hún áttaði sig þó fljótt. »Núsvo því er þannig varið — þú hefur víst ekki tek- ið eftir því, að í garðssalnum á Rúdisdorf er ágætur ofn, þrátt fyrir stóru glerhurðina er enginn vandi að hita hann upp, og verði of- kalt þar, höfum við Úlrikka fallegt og viðkunn- anlegt herbergi á neðsta lofti, sem þú veizt ekki um.« »Er það mögulegt, að þú sért enn svona rugluð,« sagði hann gremjulega og kom lítið eitl við ennið á henni. »Eg veit ekki hvað þú átt við með þessu,« sagði hún kuldalega og færði sig fjær honum. um leið og hún strauk um ennið, þar sem hann

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.