Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Blaðsíða 42

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Blaðsíða 42
162 NYJAR KVÖLDVÖKUR. Járnbrautin bar fregnina til enda símalínunnar og var síðan símuð þaðan til Washington. Regar járnbrautarfarþegjarnir komu til Washington varð þeim heldur flent við, að fregnin skyldi vera komin á undan þeim. Skömmu eftir að línan var opnuð, kusu þeir í Baltemore Silas Wright í Washington varaforseta Bandamanna, en Wright sendi óðara aftur hraðskeyti, að hann gæti ekki tekið við tigninni. Ringmenn efuðust stórlega um að þetta fljóta svar væri á nokkru viti bygt og ákváðu að bíða »áreiðanlegra« frétta. Margt var í vandræðum framan af með lín- una og erfitt að fá menn til að nota hana svo að hún bæri sig. Yfirpóstmeistarinn var einn af þeim, sem höfðu reynt að gera málið hlægi- legt áður í þinginu, enda var hann nú ein- dregið á móti inálinu, eða að ríkið skifti sér nokk- uð af þessum uppástungum Moses. Hann sagði í skýrslu sinni um tilraunirnar, að »símalínan á milli Baltemore og Washington® hefði ekki sannfært hann um, »að tekjurnar mundunokk- urn tíma mæta útgjöldunum með neinum að- gengilegum skeytataxta.« En það var Morse fremur til happs, að stjórnin vildi ekki sinna uppástungu hans. Fé- lag var myndað, »Magnetic Telegraph Com- pany«, sem tók að sér einkaleyfin, og nú fór ritsímanum að ganga vel og fékk miklar tekj- ur, þrátt fyrir hrakspár yfirpóstmeistarans. Eg þegar það sýndi sig, að síminn var þarf- legt verkfæri og bar sig vel, fóru ýmsir að koma upp símum án þess að skeyta nokkuð um for- réttindi Morses, og lenti hann af því í mörg- um og flóknum málaferlum. Reyndu þá óvinir hans að svifta hann heiðrinum af uppgötvun hans; hafði hann mikla skapraun af þessum á- sökunum og málavafstri. Má víða sjá í bréfum hans hvað hann tók það nærri sér, að menn skyldu ekki unna honum sannmælis og verka- launa hans, eftir svo margra ára stríð og bar- áttu. Morse vann málin að síðustu. En margir, sem ritað hafa sögu ritsfmans, hafa hallað sög- unni á hann, og enda sagt, að hann hafi ekki neitt í honum átt. f*að er að vísu víst, að hann á ekki hugmyndina einn frá upphafi; en það er líka víst, að hann hefur komið ritsímanum í það lag, að annað eins gott hefur ekki kom- ið síðan, og þessvegna eru nú ritsímar eftir hans lagi nú orðið eins og net um öll menn- ingarlöndin, Pað væru þá loftskeytin, er tækju honum fram, ef nokkuð væri. Áður en tilraunalínan var bygð hafði Morse líka dottið í hug að leggja síma í vatni. Kvöld- ið þ. 18, okt. 1842 Iagði hann síma í vatni við Nýju Jorvík og daginn eftir stóð í »New York Herald« að tilraun yrði gerð með skeyta- sendingar eftir vatnssíma þessum. En þegar Morse fór að starfa við símann um morgun- inn slitnaði sambandið alt í einu. Rað sann- aðist síðar, að skipsakkeri hafði krækt í símann og hafði hann dregist með akkerinu upp á skip- ið, og þótti skipsfólkinu kaðall þessi furðu- undarlegur. F*eir reyndu að draga hann upp, en komust aldrei að neinum enda, skeltu því part úr honum og létu hitt eiga sig. Af þessu má ráða, að lítið varð úr tilraun Mores, enda var mikið hlegið að henni. En hann varð ekki uppnæmur fyrir það. Það er til bréf frá hon- um ritað árið eftir, þar sem hann heldur því fram, að það sé hægt að leggja síma alla leið þvert yfir Atlandshafið. Og honum átti að auðnast að lifa það að sjá hugmynd sína rætast. Upp frá þessu fékk Morse heiður og við- urkenningu frá Ameríku og mörgum öðrum löndum. Árið 1871 var honum reist líkneski í þjóðgarðinum mikla í New York, og var lagt fé til þess frá símafólki um öll Bandaríkin. Það var afhjúpað 10. júní með mikilli viðhöfn. Voru þar viðstaddir sendiherrar úr öllum Bandalagsríkjunum og nýlendum Breta. í veizlu um kvöldið, sem haldin var í »The Academy of Music* var gestunum tilkynt, að hraðskeyta- tól það sem þar væri, stæði nú í sambandi við 10,000 hraðskeytatól í Ameríku, og svo sendi ung símamær, Miss Cornell, eftirfylgjandi skeyti til þeirra allra: „Kveðja og þökk til hrað- skeytabrœðrafélagsins um heim allan. Dýrð sé guði i upphæðum, friður á jörðu og velþókn- un með mönnum." Hinn gamli uppfindinga-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.