Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Blaðsíða 15

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Blaðsíða 15
LIANA 135 hafði snert það, eins og hún væri að þurka einhver óhreinindi af því ... »En þú komst sjálfur þessum hugarburði í samband við heim- lör mína til Rúdisdorf — og er það ekki ósk °g vilji okkar beggja?« »Eg hélt að eg hefði strax í dag fullvissað Þ'g um það gagnstæða,* sagði hann og ypti öxlum með uppgerðar kæruleysi. Hún vissi að í næsta skifti, sem hún and- mælt honum, mundi hann funa upp, en hún sagði samt stiliilega: »Já í fyrstu, en seinna játaðir þú í áheyrn hertogafrúarinnar, að það væri engu síður vilji þinn.« Hann rak upp svo æðislegan og bitran hlát- Ur. að hún steinþagnaði. »Já, eg get svo sem ósköp vel skilið, að það hefði verið mikil fróun fyrir þína særðu drambsemi og stórlæti, ef eg hefði svarað þinni fljótfærnislegu játningu á þessa leið: »Pessi ^ona vill fyrir hvern mun losna við mig — en eg knékrýp henni og bið hana að yfirgefa mig ekki; hún fleygir öllu sem eg býð henni fyrir fætur mér, og fer með glöðu geði heim í fá- tæktina, bara til að hefna sín . . . Fagra frú, slík orð í eyru þeirrar konu, sem í dag hlust- aði með áfergju eftir hverju orði er þú sagðir, hefði verið alt of óttaleg hefnd, þvílíkt leggur euginn maður í sölurnar fyrir konu sína, jafn- vel þó hann elski hana.« Líana var orðin náföl af geðshræringu — henni var þetta hin mesta skapraun; og hún hefði alls ekki viljað hlusta á það, sem hann sagði síðast, hann hafði sagt að hún vildi hefna Slu á honum. »Mainan, eg bið þig innilega að tala ekki jafn óréttlátum orðum til mín,« tók hún fram í fyrir honum. »Þú talar um hefnd. Eg hef aldrei fundið til þeirrar ástríðu, og veit ekki enn í hve mikið uppnám hún geturkomið mönnum. Marskálkurinn hefur oft gert á hluta minn og bað mikið, en eg hef sjálf sagt þér, að eg álít hann sé ekki heilbrigður, og verst árásum hans ^eð köldu blóði eftir föngum . . . Og gagn- vart þér? Hvernig ætti eg að vilja hefna mín vegna mótgerða, sem drýgðar eru óviljandi og eru því ekki mótgerðir í mínum augum? . . . Hvorugt okkar getur því sært hitt að nokkru ráði.« Varaðu þig, Júlíana — hvert orð, sem þú segir núna er hvast eins og hnífsoddur sem stungið er, þar sem veikast er fyrir — þú hlýt- ur að vita það sjálf, að þú ert sárreið.« »Því neita eg fastlega,« sagði hún stillilega. Eg er kjarklaus og finn til þeirra ranginda sem eg hef verið beitt, en eg er ekki sárreið . . . Eg var rétt áðan að skrifa Úlrikku urn þetta.« »Ha ha, þar fæ eg einmitt ágætt tækifæri til að afla mér upp!ýsinga,« greip hann fram í og gekk hratt að borðinu. »Þú gerir það ekki, Mainan,« sagði hún al- varleg en varirnar skulfu, og tók um hand- legginn sem hann hafði gripið eftir bréf;nu með. »Jú, það ætla eg einmitt að gera,« sagði hann og losaði handlegginn hranalega. »Líttu i spegilinn, Júlíana, svona litarlausum vörum hlýtur að fylgja ill samvizka . . . Eg ætla að lesa bréfið fyrir þig.« Hann gekk að glugganum og Ias með stork- andi rödd: »Eg kem í síðasta lagi að hálfum mánuði liðnum til Rúdisdorf — og þá alfarinn, Úlrikka! Þarna er eg þá búinn að setja þetta husnaróp á pappírinn svo látlaust og kuldalega, — það getur ekki gefið þér neina hugmynd um, hve bjart er í hugskoti mínu, síðan eg komst að því, að eg fengi að vera framvegis hjá ykkur Magnúsi. Þú þarft ekki að halda að þessi skiln- aður verði hávaðasamur, hann verður eins og sjálfsögð afleiðing af því, að við munum aldrei um alla eilífð eiga saman, því annað óttast alt sem vekur umtal út á við, en hitt þolir ekki að nokkurt stygðaryrði sé talað innan fjölskyld- unnar, er raski heimilisfriðnum.. Auk þess fer þessi skilnaður fram án þess nokkuð verði vart við það; — heimurinn, sem er svo fýkinn í alt þess háttar, mun ekki fá þar neitt til að gæða sér á. Einhvern góðan veðurdag ver iur bar- ónsfrú Mainan horfin úr Schönwerthhöllinni, horfin án þess nokkuð beri á úr þeim sölum,

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.