Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Blaðsíða 22

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Blaðsíða 22
142 NYJAR KVÖLDVÓKUR. svo hrifnir af, verður þú líklega að geyma í skápnum til næsta árs,« sagði Polly þegar hún kom auga á ljómandi fallegan kjól, sem bar af öllum hinum, ogskein í öllum regnbogans litum. »Já, nú mun eg ekki framar taka þátt í samkvæmislífinu, svo eg þarfnast hans ekki fram- ar. Pú mátt gera við hann hvað sem þér sýn- ist,« sagði Fanny stillilega. »Hefur þú aldrei selt þína uppgjafakjóla, eins og sumar stúlkur gera?« spurði Polly. »Nei, eg hef annaðhvort gefið þá eða látið Maud fá þá, til þess að sauma úr þeim handa brúðum sínum.« »Mundi þér þykja mjög leiðinlegt að taka tilboði, sem Bella vill gera þér?« »Ef það er tilboð um að kaupa föt þau, sem eg hef gengið í, held eg að eg taki því ekki,« svaraði Fanny í gremjuróm. »Pá ætla eg ekki að biðja þig um það,« sagði Polly og hélt áfram að skoða fatnaðinn. »Ef hún vildi kaupa dökkrauða kjólinn þarna, þá mundi eg hafa látið hann fara,« sagði Maud, sem að náttúrufari hafði meiri viðskiftahyggindi en systir hennar. »Er það hann, sem hún ágirnist,« sagði Fanny, því forvitnin yfirbugaði stærilætið. »Já, og hún spurði mig, hvort þér mundi þykja það móðgandi, ef hún bæði þig að selja sér hann, þar sem þú sæist nú aldrei í honum. Pú ert sjálf ekkert hrifin af honum, og næsta árverðurhann varla lengur með nýtízku sniði.« »Hvað sýnist þér um þetta?« spurði Fanny. »Eg er viss um að hún hefur ágirnd á kjól- num, og að hún af vinsetnd við þig vill borga hann vel, og fyrir verð hans mundir þú geta komið þér upp laglegum sumarfatnaði. Pað ýtti líka undir Bellu að biðja mig að ná í þenn- an kjól, að Trix hafði sagt henni að hún ætl- aði sér að ná í hann. Hún vissi að Trix ætl- aði sér að ná horuim fyrir ekki neitt, og það gramdist henni, því að hún vissi að kjóllinn var mjög dýr og til þess að afbola Trix vill hún bjóða þér það sama í hann og kjóllinn kostaði nýr; svo sagði hún, að þú ættir það skilið, að hún borgaði þér kjólinn vel.« »Sagði hún það? Pá vil eg gefa henni hann, og tek ekkert fyrir hann,« sagði Fanny, sem roðnaði af gremju við Trix en þakklæti við Bellu. Hún tekur aldrei við kjólnum sem gjöf, en láttu mig eiga við hana og þú skalt engar grillur gera þér um þetta. Pú átt gott skilið af Betlu, því þú hefur svo oft hjálpað upp á hana; ■ og nú ættir þú sízt af öllu að neita henni um þá ánægju, að endurgjalda þér fyrir það að einhverju leyti.« »Ef hún tekur þetta frá þeirri hlið er öðru máli að gegna. Áuðvitað kemur mér vel að fá peninga, en þó kann eg illa við að fara að selja af mér flíkurnar til að afia mér þeirra.« »Kongar og drotningar selja gimsteina sína þegar komið er í vandræði og þau hafa mist ríki sín, og það þykir í alla staði eðliiegt, og eg sé ekki að þér sé vandara um en þeim; hér er heldur ekki að ræða um annað en lítils háttar kaupskap milli vinstúlkna, og eg mundi í þínum sporum ekki hika við að gera þetta.« »Eg skal hugsa um þetta,« sagði Fanny, sem var orðin ákveðin í því að fylgja ráðum Pollyar. Systurnar og Polly héldu svo áfram að skoða fatnaðinn, og Polly ráðlagði þeim að geyma vel suma kjólana þar til síðar, að þær kynnu að hafa þörf fyrir þá. Hún sagði þeim að svona hefði móðir sín haft það. Henni hefði oít verið send brúkuð föt af efnuðu vin- fó)ki hennar, og þá hefði hún ávalt látið börn- in fá sum þeirra þegar til notkunar, sum hefðu verið sniðin upp eða snúið, en sum geymd til síðari tímans. Svo fór Polly að segja þeim ýms- ar sögur heiman að frá sér til að skemta systr- unum. Maud var einkum hrifin af sveitalýsing- unum og mælti í gáska: »Pið þurfið ekki að taka frá neinn silkikjól- inn handa mér, því eg ætla mér aldrei að verða nein tilhaldsrófa. Pegar eg er orðin stór ætla eg að giftast einhverjum sveitamanni og búa til smjör og ost, eiga tíu börn, margar kýr og nokkur svfn.« »Jú, eg gæti trúað því, að það væri við

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.