Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Blaðsíða 27

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Blaðsíða 27
KONUTRAUST 147 »Eg er yður alveg samdóma, ungfrú Max- well. Jackson, komdu með piltinn hingað áður en við lokum hann inni yfir nóttina. Já, eg er sannfærður um að hann hefur unnið til að fá skot í höfuðið, og eg vona að það verði hlut- skifti hans.* »Rað er alt of góður dauðdagi fyrir hann,« sagði Maxwell harðneskjulega. »Hermaðurinn er skotinn, en þetta er glæpamaður af verstu tegund.« »Já, það er hann,« sagði Maggy æst, »Mað- ur» sem er svo slæmur að skirrast ekki við að svíkja landa sína á þessum tímum, hann verð- skuldaði að verða — « Hér nam hún skyndilega staðar og starði fram fyrir sig náföJ, með starandi augu af ótta °g skelfingu. Pað var komið með fangann að svölunum. Tveir hermenn með hárbeitta byssustingi gættu hans, og stóðu nú framund- an henni. — — Eitt andartak sat hún sem steini lostin, gat ekkert mælt, ekkert hreyft sig. Svo stóð hún hsgt á fætur. »Þetta hlýtur að vera einhver misgáningur, kafteinn,« sagði hún lafmóð. »Hann er góður kunningi okkar. Það er allskostar ómögulegt að hann — að hann hafi gert sig sekan í—« Faðir hennar lagði hönd á öxl hennar og ýtti henni með hægð til hliðar. »Þei, Maggy,« sagði hann ekki óvingjarn- 'ega, en með sérkennilegan svip á andlitinu. ’Málefnið er ekki fyrir börn að blanda sér í; það er öldungis víst, að fyrir eina tíð var mað- urinn í vináttu við okkur, herra kafteiun, en Það var áður en eg fékk nokkurn grun um að hann var — það sem hann hefur sýnt sig að Vera. Eftir því sem eg hef heyrt, trúi egekki einasta að það geti átt sér stað, að hann sé sekur, heldur er eg næstum því sannfærður um að hann er það.« »Áður en langt um lfður, vona eg að geta sannað, hve hræðilega yður skjátlast í dómum yðar um mig, herra Maxwell,« sagði Alf stilli- 'ega, en titrandi af reiði og smán. »Eg hugsa að einhverntíma munið þér iðrast beisklega 0rðanna er þér létuð áðan falla í minn garð.* Hann leit bænaraugum á kafteininn, er strax gaf skipun um að færa hann á burt. Eftir að hann var farinn, fanst Maggy þögnin óbærileg. Hún sat og reyndi að vinna bug á geðshrær- ingum sínum. Hana langaði til að fara til föð- ur síns og kafteinsins, og sárbiðja þá að trúa ekki á sekt hans, trúa heldur staðhæfingum sín- um um, að Alf gæti ekki verið sekur. En henni fanst sem hún gæti ekki varist gráti, þegar hún færi að tala. Svo hljóp hún upp á herbergið sitt og gaf sig örvæntingunni á vald. Þessi varð þá hinn hryggilegi endir á degi þeim, er hún hafði hlakkað svo mikið til: Alf grunaður um föðurlandssvik, og tekinn til fanga af sömu her- mönnunum, er hún um langan tíma hafði þráð að sjá. Og hvað mundi nú vérða? Jafnvel þó Alf væri saklaus — og um það var hún ekki eitt augnablik í vafa um — mundi hann þá vera þess um megnugur að sanna sakleysi sitt. Og ef hann ekki gæti það, hvað þá? Honum mundi verða stefnt fyrir herrétt, og þeir lygarar, er þegar voru búnir að bera út orðróminn um hann — að líkindum til að dylja eigin sekt sína — myndu vafalaust bera vitni gegn honum. í örvílnan sinni sá hún enga leið sem hjálpað gæti. Hann mundi verða sak- feldur cg skotinn. Við þessa óttalegu hugsun hrökk hún sam- an. Hvers vegna sat hún hér aðgerðalaus, eyð- andi þessum dýrmæta tíma, ef hún, ef til vill, gæti frelsað hann? Það voru aðeins ein úrræði: Hún varð að hjálpa honum til að flýja, svo hann gæti útvegað sannanir fyrir sakleysi sínu. Til dyranna gekk hún hratt og óhikað, en þar nam hún staðar. Hvernig átti hún að haga sér? Hvernig var henni mögulegt að fram- kvænia þetta hættuspil? Hún gekk að glugganum; þaðan gat hún séð afskekta skúrinn, er Alf var fangi í. í rökkr- inu, sem var að færast yfir, sá hún votta fyrir Iíkamsmynd varðmannsins, þar sem hann gekk aftur og fram fyrir framan skúrdyrnar. Hún starði örvæntingarfull á hann. Var hugsanlegt 19

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.