Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Page 11

Nýjar kvöldvökur - 01.06.1916, Page 11
LIANA 131 svo ung og þróttmikii, það er ékki svo hætt við að slíkar manneskjur fái slag náðuga frú.... hún, hún sem menn höfðu myrt, Iá eins °g fórnarlamb í fangi þess seni bar hana — hann hélt hún væri dáin og lagði hana í rúm- 'ð, sem hún er búin að liggja í á 13. ár.. .. Eg gekk við hlið hans; eg er reyndar harð- *ynd — nei, náðuga frú, í þetta sinn ætla eg að segja sannleikann — eg er ekkf harðlynd; eg er jafnvel heimskulega brjóstgóð, og eg hélt þá að þjartað í mér ætlaði að springa, þegar vesalings konan lauk upp augunum og varð jafnvel óttaslegin við gömlu frú Shön og hélt v’st það ætti að kæfa sig aftur . .. .« Líana hljóðaði upp yfir sig af skelfingu, en frn Shön hljóp spölkorn fram á veginn og skim- aði í allar áttir, svo gekk hún hringinn í kring- Uni húsið og kom aftur rólegri. ‘Þegar maður er byrjaður á stafrofinu, verð- nr maður að halda áfram með það,« hélt hún sfratn í hálfum hljóðum. »Og þar sem eg er nu einu sinni búin að tala af mér um það sem 01 er er ríkast í huga, þá get eg ekki hætt við ^álfkarað verk. Læknirinn, sem var þýzkur þ°rpari, hélt því fram, að bláu blettirnir á háls- ltlUtn stöfuðu af óreglu, sem hefði komist á blóðrásina! En það voru för eftir 10 fingur, Sem höfðu gripið um hálsinn, 10 fingur, náð- uga frú.« »Hver gerði það?« spurði Líana og stóð á öndinni. ‘Hver hefur gert það?« endurtók frú Shön með teiftrandi augum. »Sá, sem ætíð erreiðu- úinn að þrífa hundasvipuna, sá, sém hefur °gnu klærnar, sem aldrei virðist ætla að geta iórað nóg saman .... Náðuga frú, hann er jöfuli í mannsmynd.* sHann hlýtur að hafa hatað hana takmarka- ,aust.. . . « »Hataðl« tók gamla konan upp og setti a henni hásan hlátur. »Er það hatur að kasta Ser flötum í jörðina og biðja, kveina og æpa Urn miskun? ... Já, hver gæti nú séð það á Þessari gU|u vjsnu beinagrind, að hún hefði þá I hana á röndum eins og vitstola maður. Eg hef staðið þarna í sólbyrginu og séð hann gegnum gluggann, krjúpa á kné frammi fyrir henni. Hún hratt honum frá sér og þaut svo framhjá honum út í myrkrið. Þá var hann enn fljótur á fæti — hann elti hana gegnum allan garðinn, en hún var Iétt á sér eins og fis, eins og fiðrildi. Hún var fyrir löngu komin hing- að inn og búin að aflæsa dyrunum, og kropin niður við vöggu Gabríels, þegar hann kom að dyrunum; og þá varð hann að fara svo búinn.« Frú Shön sagði frá þessu svo skýrt og greinilega, að Líönu fanst hún sjá þetta alt ger- ast í huganum........Ósjálfrátt varð henni að ganga nokkur skref frá Iæknum og gægjast inn í indverskahúsið, en þar var tjaldað fyrir glugg- ana með dökkleitu. »Já, finnið þér ekki til meðaumkunar með henni, náðugafrú?* spurði frú Shön, sem hafði tekið eftir augnaráði hennar. »Pað hefur verið mjög þögult þarna inni síðustu þrjá dagana, hún sefur mikið — eða svo eg segi eins og er — hún sofnar bráðlega hinsta svefninum. Áður en mánuðurinn er liðinn verður öllu lokið.* Ungu konunni hafði vöknað um augu og hún spurði: »Var hér enginn, sem gæti vernd- að hana?« »Hver hefði það átt að vera? Sá, sem hafði flutt hana hingað yfir hafið, hans náð, barón- inn sálugi, var búinn að liggja fjóra mánuði í rauða herberginu. Gluggablæjurnar voru dregn- ar niður og enginn gluggi mátti vera opinn; og þegar hann fékk óttaköstin, Iét hann setja hlerana fyrir og stinga upp í skráargötin til þess að djöfullinn kæmist ekki inn. Ef hann spurði eftir þeirri veru, sem honum var kærust af öllu hér á jörðu, var honum sagt að hún væri orðin honum ótrú og tekin saman við annan. Pvílík svívirðing, hvernig hann var þá dreginn á tálar! Og allir hér í höllinni tóku þátt í þessu samsæri — Guð fyrirgefi þeim það — og manninum mínum sálaða líka. Hann var herbergisþjónn hjá baróninum sálaða og hefði mist stöðu sína ef hann hefði sagt eitt orð .... Og svo fór eg að gera mig harðlega 17*

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.