Nýjar kvöldvökur - 01.04.1950, Blaðsíða 52

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1950, Blaðsíða 52
1111111 Rafmagnsmorðið ný skemmtisaga eftir Val Vestan. — Meginefni sögunnar er á þessa leið: Ung stúlka, sem var í ,,bransanum“ finnst örend í herbergi sínu í Reykja- vík einn morgun og sömuleiðis roskinn drykkjumaður. Líkskoðun leiðir í ljós, að hjartaslag hefir orðið honum að bana. í fljótu bragði lítur út fyrir, að rafplata hafi valdið dauða stúlkunnar, en við nánari athugun kemur í ljós, að hún hefir verið myrt. En hver er morðinginn? — Lögreglan byrjar nú eltingaleikinn — og Krummi, sem er hér ein aðalsöguhetjan eins og í Týndi hellirinn, og Flóttinn frá París, fer einnig á stúfana. Lögreglan þykist fljótt vera viss í sinni sök og handtekur ungan mann. En Krummi var ekki sammala lögreglunni. Hann fór sínar eigin götur við rannsókn málsins og leysti gátuna — en lausnin kom öllum á óvart. — Sagan er fjörlega skrifuð og laus við allar málalengingar. Hún er svo spennandi, að maður les hana í einni lotu. Týndi hellirinn heitir fyrsta skemmtisagan, sem kom út eftir Val Vestan. Flóttinn frá París var næsta skemmtisagan eftir Val Vestan, sem kom út á vegum Hjartaásút- gáfunnar. — Hugmyndaauðgin er mikil í öllum sögunum og stíllinn lipur og fjörlegur. — Báðar síðasttöldu sögurnar eru nú að heita má uppseldar. HJARTAÁSÚTGÁFAN hefir einnig gefið út nýlega eftirfarandi sögur: Ástir Kleópötru eftir Rider Haggard. Það er ógleymanleg ástarsaga. Sál fallbvssanna eftir sinn góðkunna norska höfund, Övre Richter Frich, sem er kunnastur fyrir sögurnar um Jónas Field hetjuna miklu. Bankaránið eftir Leslie Charteris. Þetta er nýjasta sagan um „Dýrlinginn“, hinn fífl- djarfa ævintýramann, refsivönd glæpamannanna. Lífið að veði amerísk skáldsaga, sem hlotið hefir óvenjulegar vinsældir. Inn í söguna er ofið spennandi ástarævintýrum. Hnefaleikarinn er ein af skemmtilegustu sögum skáldsagnasnillingsins Jack London. Þetta er í senn unaðsleg ástarsaga og baráttusaga ungxar hnefaleikahetju. Leyndardómur frumskóganna segir frá hinum furðulegustu ævintýrum tveggja enskra ofurhuga og fylgd- armanna þeirra í frumskógum Afríku. hiartaásútgAfan

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.