Stjarnan - 01.01.1897, Side 56
52
þokkalegur, að viðunanlegt má þykja, ef ekkert
annað er út á ritið að setja. 0g svo er líka búist
við að búningurinn geti orðið meira upp í móðinn
að ári.
Um innihaldið bef ég í stuttu máli það eitt að
segja, að ég hef gert mér alt far um að velja það
sem fjölbreyttast, og jafnframt sem gagnlegast og
áreiðanlegast að kostur var á, á svo stuttum undir-
búningstíma sem ég hafði í þetta sinn, en svo lofast
ég til að verða að því leyti betur undirbúinn að
ári. Eg tel því sjálfsagi að ritið reynist meira
virði til hvers einasta manns, en svarar því sem það
kostar.
Þær fáu prentvillur (staffeil) sem því miður
eiga sér stað í ritinu, vonast ég til að menn afsaki
og leiðrétti góðfúslega. Enda held ég að engin
þeirra sé svo háskaleg, að valda þurfi röngum
skilningi á efninu.
í von um að Stjörnunni minni auðnist að hald-
ast í eðlilegri hreyfingu á braut sinni, og leyptra
við og við, þeim til gagns og gleði sem kaupa hana
og lesa. Þá læt ég hér lokið máli mínu í þetta
sinn, með heilla óskum til yðar allra.
Winnipeg, Man., 15. Desember, 1897.
S. B. JóNSSON