Sjómannadagsblaðið - 04.06.1950, Qupperneq 47
og í herskipafylgdinni, borið saman við litla hæg-
genga bátinn, sem dæmdur var til að vera helm-
ingi lengur á leiðinni yfir hættusvæðið.
Þegar við komum suður að mynni Tyne fljóts-
ins, sáum við Oslofjorð aftur, en í þetta skipti
aðeins á möstrin og naumasta skorsteininn. Misk-
unarleysi algjörrar styrjaldar, sem jafnt hitti stór
og smáa, réttláta og rangláta, hafði hitt þetta fagra
og stóra skip og sært skylda og mikla siglinga-
þjóð, stóru sári.
Steingrímur kvað:
„En bót er oss heitið, ef bilar ei dáð,
Af beisku hið sæta má spretta,
Af skaða vér nemum hin nýtustu ráð,
Oss neyðin skal kenna hið rétta,
Og jafnvel úr hlekkjunum sjóða má sverð
í sannleiks og frelsisins þjónustugerð".
Upp úr brotajárni styrjaldarinnar hafa nú risið
nýir svanir hafsins, enn glæsilegri en nokkru sinni
áður. Hið nýja skip norsku Ameríkulínunar, sem
aftur hefur hlotið heitið ,Oslofjord‘ er að stærð og
burðarmagni ekki meiri en sá, sem þeir misstu á
stríðsárunum, en inn í þetta nýja skip, hefur verið
meitlað svo margt, sem að gefur því yfirburði. Hið
nýja skip er 577 fet að lengd og mesta dýpt þess
hálft 27. fet. Þetta er ósvikinn straumlínubátur.
Engin tvö bönd í skrokknum eru eins, hann er mun
breiðari en hinn Oslofjorðurinn, þess vegna verður
hið nýja skip mjög stöðugt þrátt fyrir hinar ávölu
línur í skrokknum. Allt er gert til að reyna að
firra skipið þeim veltingi, sem ekkert skip í rúm-
sjó getur verið laust við, og er það aðallega gert
með slingurbrettum, sem komið hefur verið fyrir
á skipsskrokknum neðan við sjómál á þeim stað
sem reiknað hefur verið út að þau komi að mest-
um notum. Skipið er byggt þannig, að það ávalt
sé kjölrétt, einnig þegar það er tómt, og jafnvel
það þótt skipið hafi mjög mikla yfirbyggingu eins
og flest hin nýju skip.
Fjórtán rafmagnsvindur og tveir kranar eru
notaðir til að ferma og afferma skipið. Lestin rúm-
ar 2700 smálestir eða 215 000 kúbikfet og eru
lestarnar útbúnar frystitækjum er geta varðveitt
farminn við hvaða kuldastig sem er upp í 23 gráð-
ur. Stjórnpallur skipsins, reykháfarnir og allir
björgunarbátarnir eru byggðir úr aluminum. I
Oslofjord eru auðvitað öll hin nýjustu siglinga- og
öryggistæki sem þekkjast.
•t
„Oslofjord
Skipshöfnin á nýja Oslofjord, er 250 til 280
manns. Meðan eldri Oslofjord tók 840 farþega
mun hinn nýi ekki hafa pláss, fyrir nema 600
vegna þess, að hið nýja skip er útbúið miklu
meiri þægindum fyrir farþegana. A 1. fafrými er
aðeins einn eða tveir farþegar í hverjum
klefa og 50 herbergjanna hafa baðklefa út af fyrir
sig. Loftið í farþega herbergjunum er hreinsað
og ,,gerilsneytt“ og hitað eins þægilega eins og
þess er óskað.
Ofan frá reykingasalnum er hægt að fara með
einni lyftunni 7 hæðir niður í sundhöllina, þar sem
eru líka leikfimissalir og háfjallasólir.
Hinn nýi Oslofjord var byggður í Hollandi af
Neederlandsche Dok en Scheepbouw Maatschappij
og unnu um 800 manns að byggingu skipsins. Af-
hending skipsins var aðeins nokkrum mánuðum
á eftir tilskyldum tíma.
Segja má, að þetta nýja skip sé ekki eingöngu
kóróna norsku- Ameríkulínunnar, heldur og einn-
ig norsku sjómannanna og þjóðarinnar yfir höfuð.
H.
Frá Sjómannadeginum
Sigurvegararnir 1949.
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 27