Sjómannadagsblaðið - 06.06.1971, Side 29
VISSUÐ ÞIÐ
ÞETTA?
Danski rithöfundurinn, teiknarinn o. fl.,
Gunnar Hansen, var víðfrægur fyrir
safn sitt um sérstæð og furðuleg fyrir-
bæri. Skömmu fyrir andlát sitt árið
1970 kom hann á ritstjórn „Familie
JournaIen“, lagði bunka af handritum
og teikningum á borðið og sagði: „Gæti
þetta ekki verið efni í bók“? Hún kom
út síðari hluta árs 1970 hjá forlp^inu
Höst & Sön í Kaupmannahöfn. Með 120
teikningum og frásögnum undir heit-
inu „Vidste De det“. Þaðan eru sýnis-
horn þau tekin, sem fram koma hér í
blaðinu til kynningar.
Skipið hvarf í 15 ór, en kom svo
siglandi fullum seglum
Um miðja fyrri öld hvarf seglskipið
„Gloriana" gjörsamlega sporlaust, eftir
að það hafði síðast sézt í kyrra belt-
inu við Ekvador. 15 árum síðar var
hvalveiðiskipið „Adventure" að veið-
um í suður-Ishafinu. Allt í einu kom
seglskip með fullum seglum í ljós út
úr þokunni, — þetta var „Gloriana".
Það var farið um borð í skipið og gát-
an leyst. Það hafði orðið uppreisn um
borð — einhver hluti áhafnarinnar
hafði yfirgefið skipið í björgunanbát-
unum. Þeir, sem eftir voru, lágu frosin
lík á dekkinu. Skipstjórinn sat í káetu
sinni yfir dagbókinni. Hann hafði verið
skotinn í hnakkann.
Dekkið mólað rautt
A konungsskipinu „Vasa“, sem byggt
var í Stokkhólmi árið 1628, var dekkið
málað rautt, svo að áhöfnin missti síð-
■ur kjarkinn þegar blóð flyti um það í
orrustum. Skipið lenti hins vegar aldrei
í neinni orrustu, þar sem því hvolfdi
í Stokkhólmi, er það var að leggja í
fyrstu ferð sína. „Vasa“ var lyft af
sjávarbotni 24. apríl 1961, og er nú
sýnisgripur.
Köngurlóin skynjar veður
Fleiri klukkustundum áður en regn eða
stormur nálgast, skynjar köngurlóin
það, og verndar vef sinn með því að
bíta í sundur þá þræði, sem verða í
vindáttinni, svo að vefurinn blakti í
stað þess að springa.
Fiskabardagi í stað nautaats
í Síam gera menn sér það til gamans,
að setja tvö karldýr af smávöxnu en
litríku fisktegundinni Betta Splenders,
saman í fiskabúr. Þeir ráðast sam-
stundis hvor á annan, og það þykir
mjög góð skemmtun að horfa á hvemig
þeir í ofsabræði sinni skipta stöðugt
um lit, allt frá rauðu, gulu og í blátt.
Veðjað var um hvor fiskanna myndi
sigra, en nú er orðið altítt að láta ör-
þunna glerplötu á milli þeirra, og þá
vinna þeir á stigum.
Umferðarmesta höfn heims
Frá árinu 1963 hefur Rotterdam verið
umferðarmesta höfn heimsins. Aður var
það New York. Árlega fara um höfn-
ina í Rotterdam um 30.000 úthafssigl-
ingaskip, en þar að auki um 250.000
fljótabátar frá Rín, og margir þeirra
gegnum Basel frá miðri Evrópu. Til
þess að halda þessari risahöfn hreinni,
hafa hinir hreinlátu Hollendingar byggt
vatnssuguskip, sem með löngum sog-
örmum dregur að sér fljótandi rusl og
olíubrákir af yfirborðinu. Óhreinindin
eru síjuð burtu en hreinn sjórinn renn-
ur aftur út.
SJOMAN NADAGSBLAÐIÐ 15