Sjómannadagsblaðið - 06.06.1971, Page 46
FJOLDAMORÐ
um borð í s.s. Morro Castle
Willmott skipstjóri hafði lótið í Ijós andúð sína og varað við einum
manni um borð, sem hœttulegum umhverfinu. Skömmu síðar fannst skip-
stjórinn lótinn í kóetu sinni. Þegar eldur brauzt út í skipinu skömmu síðar,
sló felmtri ó yfirmennina. Morro Castle varð að fljótandi líkbrœðsluofni.
Athugið! Ruglingur hefur orðið á síðum í þessari
grein. Bls. 33 á að vera 35/ og bls. 35 á að vera
33. — Lesendur eru beðnir velvirðingar á þessu.
S.s. Morro Castle hóf síðustu ferð
sína Mukikan 'liálfníu um kvöldið. Það
voru 300 farþegar um lx>rð og áhöfnin
um 200 manns. Fyrir fjölda af þessu
fólki átti lúxusskipið eftir að verða síðar
líkbrennsluofn. En iþað grunaði engan,
þegar það sigldi út úr höfninni í Hav-
anna uppljómað 'frá stalfni til skuts og
skipshljómsveitin lék „Melancoly Baby“
uppi á A-dekki 'fyrsta farrýmis. Skipið
glitraði eins og gimsteinn á dökkum
haffletinum. Þetta var 5. sept. 1934.
Aætlunarhöfn: New York.
Um eftirmiðdaginn 7. sept., sólar-
hring áður en Morro Castle átti að
koma til New York, voru sendar út að-
varanir um storm fyrir alla austurströnd
Ameríku. Fárviðri var í aðsigi um norð-
urhluta Karabíska hafsins. Robert Will-
mott skipstjóri ákvað að ganga snemma
til 'hvílu, því 'hann yrði að vera kominn
aftur í brúna löngu fyrir dagris.
Um kvöldið var haldinn hinn venju-
'legi lokadansleikur slíkra ferða. Will-
mott skipstjóri tók ökki þátt í hátíða-
höldunum, en lét færa sér mat upp til
sín.
Um það bil klukkustund dftir að
skipstjórinn hafði fengið matinn upp
til sín, kom þjónn inn í káetu hans, til
'þess að ganga frá fyrir nóttina. Hann
opnaði hurðina inn í baðklefann og
snarstanzaði. í baðkarinu lá Wilmott
skipstjóri látinn. Hann var hálf afklædd-
ur en það var ekkert vatn í baðkerinu.
Slkipslæknirinn gat ekki að svo stöddu
ifullyrt um dauðaorsökina, en margt
benti til eitrunar. Og hefði þá einhver
Játið eitur í mat skipstjórans.
F)TSti stýrimaður, Leonard Warms,
tók við stjórninni um borð. Klukkan
2,30 um nóttina, sjö stundum eftir
dauða skipstjórans, var Warms að starfi
í brúnni. Veður hafði snögglega breyzt
og vindur var stöðugt að aukast. Morro
Castle valt og stampaði töluvert.
Skipið var nú statt um 30 sjómílur
suður af Scotland Light, og áttí þvi
skemmt dftir inn að Ambrose Ghannel,
þar sem meira skjól yrði fyrir versta
óveðrinu. Það var aðeins spurning um
nokkrar klukkustundir.
Á þriðja dekki undir brúnni var
þjónninn David Campell að taka til i
reyksalnum. Einn af farþegunum kom
til hans og spurði hvort það gæti verið
einhvers staðar að brenna. -—- Mér finnst
ég finna brunalykt, bætti hann við.
Klukkuna vantaði nákvæmlega tíu
mínútur í þrjú þegar Campell fór með
farþeganum inn í stóra samkomusalinn
— þar sátu enn nokkrir farþegar yfir
glösum. Þeir sáu engin merki um bruna
þar inni, og héldu því áfram inn á skrif-
stofuna, sem var þar á sama dek'ki. Þar
urðu þeir varir við allsterka brunalykt,
en þó var ekkert að brenna þar. En
reyk virtist leggja frá birgðakldfa, sem
var þar nærri, og aðeins skipverjar höfðu
aðgang að. Campell reif dyrnar upp, en
hrökklaðist frá aftur — þar var allt í
ljósum loga og mikill reykur gaus á
móti þeim. Hann skellti dyrunum aftur
og hljóp af stað til þess að gera aðvart.
Warms fékk tilkynningu um þetta á
brúnni. Hann gaf þegar fyrirskipun um
að slökkvistarf yrði þegar hafið. Hon-
um datt þó ekki í hug, að um verulega
hættu gæti verið að ræða.
En Hackney, annar stýrimaður, sem
stjórnaði slökkvistarfinu, gerði hrapal-
leg mistök. Hvorki honum eða öðrum
datt í 'hug að birgja lolftventlana milli
birgðaklefans og slkrifstofunnar. Bruna-
hurðinni milli skrifstofunnar og stóra
samkomusalarins var ekki heldur lokað.
Allt í einu brauzt eldurinn þá leið með
ofsalegum hraða. Logarnir átu sig i
gegnum dekkið upp undir farþegaklef-
ana þar fyrir ofan.
Warms stóð í brúnni og horfði á
ihvernig reykurinn vallt fram. — Ágætt,
hugsaði hann. Þá eru þeir komnir í
gang með vatnsslöngumar. Allt i einu
heyrðist hver hvellurinn af öðmm —
það voru rúður sem sprungu alf hitan-
um. Stórir eldblossar streymdu út og
gler var sífellt að springa.
Warms gaf þegar merki um allsherjar
aðvömn, og gaf fyrirskipun um að halda
áfram með fullri ferð upp undir New
Jersey-ströndina svo að Morro Castle
fengi vindinn inn yfir stjómborðssíð-
una. Með iþvi væri ef til vill hægt að
'halda eldinum öðrum megin í skipinu.
32 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ