Gripla - 01.01.1977, Síða 64
60
GRIPLA
Ekki hafa verið bomar brigður á að hér sé rétt farið með, hver hafi
þýða látið, en um aldur þessa verks hefur verið deilt.58 Ártöl koma
aftur á móti ekki fyrir í íslenskum formálum eða eftirmálum.
I vestumorrænum handritum koma fortitlar með ártali ekki fyrir,
enda þótt í þeim sé að finna nær öll sömu atriði og í evrópskum for-
titlum frá sama tíma. Taka má sem dæmi:59
Bok þessi heitir edda. hana hevir saman setta snorri sturlo sonr
eptir þeim hætti sem her er skipat. er fyrst fra asvm ok ymi. þar
næst skalldskapar mal ok heiti margra hlvta. Siþaz hatta tal er
snorri hevir ort vm Hakon konvng ok skvla hertvga.
íslenskir höfundar á miðöldum virðast þó ekki hafa farið eftir boð-
orði eins málskrúðsfræðings sem lét svo ummælt að titill ætti að lýsa
eins vel upp eftirfylgjandi efni og sólin lýsti upp veröldina.60 Yfirleitt
fylgja íslenskir skrifarar incipit reglunni um titil61 og stundum flýtur þá
með nytsamlegur fróðleikur:62
58 Sbr. Carl Ivar Stáhle, Ny illustrerad svensk litteraturhistoria (Stockholm
1955), 52; H. Schiick, Illustrerad svensk litteraturhistoria (Stockholm, án ártals),
266 bendir á að þessi ummæli hafi varla getað staðið í þeim eintökum sem Eufe-
mia lét gera fyrir Erik hertoga.
59 Edda Snorra Sturlusonar (Hafniæ 1852) II, 250. Um titil gefur Conrad frá
Hirsau eftirfarandi heilræði, þegar hann talar um muninn á formála og titli: ‘sed
inter prologum et titulum hoc interest, quod titulus auctorem et unde tractet
breviter innuit, prologus vero docilem facit. . Dialogus super auctores sive dida-
scalon, hrsg. v. G. Schepps (Wiirzburg 1889), 24. Sjá einnig um þetta efni A.
Micha, tilv. rit, 193.
60 Sbr. Remigii Autissiodorensis in artem Donati minorem commentum, edidit
W. Fox (Lipsiae 1902), 1: ‘Titulus dicitur a Titane. i. a sole, quia, sicut sol illu-
minat mundum, ita et titulus librum.’ Höfundur Fyrstu málfræðiritgerðarinnar
hefur að öllurn líkindum þekkt ofangreint rit, því að þar sem hann ræðir um titul,
segir: ‘titull kveðum vér þat er sem lítil sól sé því at svá sem sól lýsir þars áðr
var myrkt þá lýsir svá titull bók ef fyrir er ritinu eða orð ef yfir er settr.’ Sbr.
The First Grammatical Treatise, ed. by Hreinn Benediktsson (Reykjavík 1972),
242; stafsetning samræmd hér. Sjá einnig athugasemdir Hreins Benediktssonar,
tilv. rit, 190-191. Sbr. einnig P. Lehmann, Mittelalterliche Buchertitel II, Sitzungs-
berichte der Bayerischen Akademie der Wissenschaften (Miinchen 1953), 4. Þess
ber að geta að algengt er í formálum, að nafn bókarinnar sé útskýrt, sjá t. d. Bysk-
upa SQgur (1938) I, 72 (Hungrvaká).
61 Sbr. Halldór Hermannsson, On Titles and Nicknames of Icelandic Books,
Islandica XXIX, 32.
62 Perg. fol. nr. 1, lva.1-3; sbr. EIM (Early Icelandic Manuscripts in Facsimile)