Skýrslur um landshagi á Íslandi - 01.01.1858, Blaðsíða 336
322 UM LANDSHAGSFRÆÐl ÍSLANDS.
tíundargjörðin var í lög leidd, liafl þíngfararkaup verið goldið að
eins af skuldlausu fé.
Menn hafa nú reynt af skýrslum þeim, sem nú voru nefndar,
að komast eptir því, hversu mannmargt var á íslandi í fornöid, og
hafa jafnað saman þeim, sem guldu þíngfararkaup um 1096, skalta-
talinu 1366 og skattbændatalinu 1753. Menn vita nú manntal árið
1753, og þá álykla menn svo, að sama tiltala hafi verið milli þíng-
fararkaupsbænda 1096, skattbænda 1366, og allra bænda á landinu,
eins og það var 1753; síðan hafa menn fundið mannfjöldann með
því að lelja 7 manns í heimili. þetta er reyndar hæpið í marga
slaöi; fyrst er það, að það er ekki allt eilt þingfararkaupsbændur,
eður búarnir fornu, og skaltbændurnir 1753 og nú á dögum; annað
hitt, að menn geta ekki fundið nákvæmlega skattbændatal af skatta-
talinu 1366, og hið þriðja, að árið 1753 er ekki vel að marka, því
bæði er bændatalið ófullkomið, og næsta ár á undanvarharðréttimikið.
þá er og enn hið fjórða, að eitt ár er of lítið til samanburðar, og
er það mikið mein, að ekki er til neitt skattbændatal á landinu,
og hið fimmta, að á höfðíngjabæjum í fornöld voru miklu fleiri
menn í heimili, en nú á seinni tímum. Töluskýrsla þessi verður
þannig:
Ar. Skattbændur. Bændur allir. Manntal.
1096 4560 14,549 104,753
1311 3990 13,206 95,083
1366 3926 12,526 90,187
1753 2100 6,700 48,430 *
i) í Nýjum Félagsrilum X., 28. bls. og í Island i dct attende Aarh. 267. bls.
cr sogt, að árið 1753 hafi svo margir skattbændur verið á landinu, og cins
þeir bændur, er ekki voru í skatti, cins og hér er talið, og hö'fum vér fylgt
því. Vér vilum ekki gjörla hvoðan þetta er lekið, cn ætlum þó, að það sé
cptir skýrslu Ólafs amtmanns, er slendur í hinum Gó'mlu Félágsrllurn VI.,
96. bls. En þess ber að gæta," að þar eru skattbændur taldir 2158, og
bændur, sem ekki guldu skatt, 4564, það cr alls 6722 bændur, og þó vantar
i skýrslu hans bændatal úr Strandasýslu og úr Vestmannaeyjum. En 1
G. Fél. IV., 178. bls. segir Skúli fdgeti, að bændatalið 1753 haÐ verið alls 6783,
skaltbændur 2128, og hinir, scm ekki voru í skatti, 4655, þar af hérumbil
260 cmbættismenn, sem voru undanþcgnir skatti. þctta allt, segir hann, sé
„eptir sýslumanna regislrum, nieð hendi og signetum staðfeslum"; en hann