Eimreiðin - 01.04.1946, Blaðsíða 33
eimreiðin
JAKOB THORARENSKN, SKÁLD
97
kvæðum. En oft er einnig í þeim einhver athugasemd um vor-
hretin.
Trúin á landið á stundum í vök að verjast og trúin á lands-
fólkið líka. Þá trú sína ræðir Jakob Tliorarensen í nokkrum
stærstu og skörulegustu kvæðum sínum. Það eru kvæði eins og
«Dagur“ 0g „Bólstrar“ (í Stillum), „f mistri“ og „Ný tíð“ (í
Heiðvindum) og „Horft fram“ (í Haustsnjóum) og fleiri. f þess-
t»n kvæðum metur liann og vegur sögu og samtíð og lífsskoðun
þeirra, afköst og afrek og framtíðarvonir. Dagarnir „flytja Ijóss-
nis farm til folda og þjóða . . . og sterkur lúðurliljómur á lífið
kallar“. En hann spyr einnig: Til hvers eru allir þessir menn?
f il hvers er starfað í óöld ófriðar og fárskapar, ólieilinda, flokka-
drátta og ranglætis? Jakob Thorarensen hefur kveðið kröftugt
gegn slíkum ódyggðum og slíkri sundrung og hvatt til eindrægni,
heilinda og starfs. 1 kvæðinu „Horft fram“ (1936) segir hann
vid þá ungu menn, sem „erfa ríkið“:
Farið vel! í festu kjalar
fáiiV grjót úr liorfnri tíð,
hæði pundin köls og heilla,
— blóðtöp vor og unnin stríð.
Honum virðist framtíðin stundum „í mistri“ og „vafi um v ddið
°g auðinn“, frelsið og gróandann.
En innst inni trúir Jakob Tliorarensen á „nýja tíð“, þar sem
«sæmd og manndáð“ geti bjargað málunum. Sú tíð er „gunnöld,
glóöld . . . fjöröld, frjóöld“ og hún er einnig „starfsöld og ljós-
<>ld“. Þessi trú kemur vel fram í kvæðinu Ný tíð frá 1933. Víða
1 Pví kvæði má heyra flugið í kveðandi og rínii Jakobs Thorar-
eHsen. Hann er hagorður og rímslyngur freniur en Ijóðrænn.
^agmælska lians og hættir eru að mestu í gömlu fari þjóðlegrar
kfaglistar. Hann bregður fyrir sig fornum liáttum eins og hryn-
hendu og ljóðahætti, og endur og eins sextánmæltu og sléttu-
höndum eða erlendum liætti eins og sonnettu. Annars eru k.væði
hans undir ýmsum tilbrigðum nýrri hátta. Kveðandi og rím er
einnig á gamla vísu, liáttvís og skorðuð og formföst. Bímið er
S< lt af næmu brageyra og hagmælsku og oft dýrt kveðið, en
Hýrleiki innrímsins stundum meira af festu en mýkt, en endarím
Purt og létt. Stíll og kveðandi Jakobs Thorarensen er persónu-
7