Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1952, Síða 82

Eimreiðin - 01.01.1952, Síða 82
70 RITSJÁ EIMREIBIN um fræðum, hélt því fram, að íslenzk ljóðlist væri nú í öldudal, hvergi nærri eins vel kveðið á Islandi og gert hefði verið, þegar þeir Matthias, Einar Benediktsson og Hannes Haf- stein voru í blóma lífsins. Doktorinn komst svo að orði, að þeir hefðu allir verið mikil skáld á evrópskan mæli- kvarða, en öðru máli gegndi um þá, sem nú sætu á Braga bekk hérlendis. Ég ætla mér ekki þá dul að rengja né réttlæta þessa fullyrðingu doktors- ins og annarra, sem taka undir með honum, en þeir eru margir, einkum af miðaldra og eldri kynslóð mennta- manna. Hitt má þó telja líklegt, að aldrei hafi iðkun ljóðlistar verið al- mennari en nú hér á landi, ef dæma skal eftir því, hve margir gefa út ljóðabækur. Og sannast mála hygg ég vera, að sjaldan hafi jafnmargir vel kveðið og einmitt á vorum dögum. En seinni timinn og reynslan ein geta sannað, hve lifseigt það verður. Nær er mér þó að halda, að ýmsir þeir, sem nú yrkja og vanmetnir eru af sumum: hljóti þar að halda hlut, er þverri ei brátt, eins og komizt er að orði í bók þeirri, sem hér verður gerð að umtalsefni og prentuð var fyrir jólin. Eflaust er Jakob Thorarensen rammislenzkasta skáldið, sem nú er uppi. Hann er óvenjulega sérstæður, þekkist, hvar sem hann fer. Karl- mennska, hógværð og kjarnyrði ein- kenna ljóð hans. Þau virðast að vísu ósjaldan dálítið hrjúf í fyrstu, jafnvel stirð. En svo var og um kvæði Grims og Bjarna, frænda Jakobs. Frýr þó enginn þeim snilldar. Frá ljóðum Jakobs andar nokkrum svala, eins og nöfn bóka hans bera með sér. En sá andblær eða jafnvel gustur er vissu- lega hressandi, já, til heilsubótar. Og undir þessum napra hjúpi leynist ósvikin glóð. Síðasta ljóðabók skálds- ins, Hrímnœtur, er engin undantekn- ing í þessu efni né öðrum. Hann er sjálfum sér samkvæmur enn sem fyrr, engin afturför, hvorki í skapi né meðferð efnis og forms. Sá, sem þetta ritar, er handgengn- ari kvæðum Jakobs en verkum flestra annarra núlifandi skálda. Þegar Snæ- ljós, fyrsta ljóðabók hans, kom út 1914, lærði ég fljótt ýmislegt úr henni utan að, þótt ungur væri. Og þvílíkri fegins hendi hef ég jafnan tekið hverri nýrri kvæðabók, sem Jakob hefur látið frá sér fara. Samt þykir mér vænst um þessa síðustu. 1 henni kemur hann lesandanum svo skemmtilega á óvart. Yrkisefnin i þessari bók eru fjöl- breytt, svo að engum þarf að leiðast lesturinn. Hún vinnur og við endur- lestur, eins og allar góðar bækur, en tapar ekki. Vísur og ljóð, sem í fyrstu vöktu enga sérstaka athygli, koma að lokum á móti lesandanum og hita honum í hamsi. Jakob er hnyttinn og gamansamur eigi síður en fyrr, skarp- skyggn á veilur samtímans og vægð- arlaus að segja þjóð sinni til synd- anna. Þannig gegnir hann hlutverki spámanns og sannleikssegjanda, eins og skáldi ber. Eru ófá kvæði þeirrar tegundar í Hrímnóttum. Heitir eitt hið hvassasta af þeim Forkólfur. Fjallar það um valdafikinn blekk- ingamann. Um hann segir svo: Hann girntist metorð og vildi völdin, það vissi fjöldinn. Og viður margs konar vélasnilli hann vann sér hylli. Hann umbun hrúgaði mjög í múginn og mörgu í súginn.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.