Eimreiðin - 01.01.1969, Qupperneq 31
BLÖÐIN, SAGAN OG SAMTÍÐJN
1B
þjóðlífið sjálft og breytingar þess og að sumu leyti ný tækni, ný
fréttaöflun og nýtt efni útvarpsins. Blöðin hafa erlend sambönd
og alþjóðlegri útsýn meiri en áður. En þau liafa samt á sér margt
af gömlu og séríslenzku svipmóti, þau eru persónuleg og yfirgnæf-
andi pólitísk, margt efni er persónulegt, eins og furðulega mikil
eftirmæli, eða bókmenntalegt og listrænt efni.
Margir hafa gaman af því að gagnrýna blöðin, ekki síst málfar
þeirra og má oft til sanns vegar færa. Of lítil málþekking eða
ekki nógu örugg máltilfinning spillir góðum greinum og forvitni-
legum fréttum, þó að oft séu blöðin líka létt og vel skrifuð og nýr
blaðastíll eða tilraunir til hans geri vart við sig. Blöðin eru vakandi
og á verði fyrir fólkið eða fyrir flokka sína. Hér eiga stjórnmála-
flokkar mörg stærstu blöðin, og þykja þau stundum fremur túlka
þeirra sjónarmið en hug almennra lesenda sinna, eins og mjög hefur
farið í vöxt að erlend blöð geri, sem mest eru háð lesendum, ef
ekki er um beina stjórnvaldaútgáfu að ræða. Hlutur almennings
í íslenzkum blöðurn hefur þó farið vaxandi á tilteknum sviðum,
með alls konar aðsendum greinum um daglegt h'f og dagieg hags-
munamál. Stjórnmáladeilur og skammir eru enn talsvert fyrirferða-
miklar. Það er gamalt íslenzkt einkenni og veldur hver á lieldur
hversu um það er. Menn hafa hér lengi verið ósparir á stór orð um
andstæðinga sína og er máske einnig forn arfur.
Blöðin hafa nú lengi haft heimild prentfrelsisins til þess að kasta
eldibröndum sínum, en sú var tíðin að þau þurftu að berjast nokkuð
fyrir ritfrelsi sínu og er tilvera þeirra ekki síst undir málfrelsinu
komin.
Afstaða blaðanna hefur breytzt mikið á seinustu áratugum, efni
þeirra og tæknibúnaður og flest orðið umfangsmeira og örara en
áður var og stórauknar auglýsingar setja svip sinn á þau. Það, sem
kalla má bókmenntalegt gildi dagblaðanna er oft rninna, en var í
gömlu vikublöðunum. Það á samt sjálfsagt eftir að sýna sig, að
blöðin verða söguheimildir, sem reyndar þarf að nota með athygli
og varkárni, og þau verða náma til fróðleiks um þjóðlíf og persónu-
sögu.
Hitt vitum við nú ekki, hvernig blöð framtíðarinnar líta út.
Prentlistin gerbreytti mörgum menntamálum og áróðri. Hún er
mesta lýðræðislist eða tækni, sem upp liefur verið fundin og dreifði
til almennings mörgum verðmætum, sem áður voru séreign fárra
manna. Samt er enn ekki helmingur fólks í heiminum læs, en því