Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1969, Side 53

Eimreiðin - 01.01.1969, Side 53
USTAMEN.X, GUÐSTRÚ OG GAMALT FÓLK 35 Hinu er þá jafnan gleymt, að þá átti þjóðin gjaldeyrisvarasjóð, — miklu öflugri en þann, sem henni tókst að nurla saman á undangengnum góðærum. — Sá sjóður var að vísu — yfirtak langt bak við ömurleik hungurs og sorgar, — en hann var eigi að síður á vísum stað — í hinni himnesku borg. í þann tíð lifði fólkið ekki í trú, heldur í óvé- fengjanlegri vissu um, að þegar það kæmi til hinna himnesku tjaldbúða, rnyndu allar þess þarf- ir verða ríkulega uppfylltar. A þeim dögum stjórnaði guð veðráttunni milliliðalaust, en hafði ekki fengið hana í hendur náttúrulögmálunum. Þess vegna gerði hann oft fyrir bænarstað mannanna, skyndilega breytingu til batnaðar á veðurfari og bjarg- aði þeim þar með frá bráðum dauða. FjaiTÍ fer því, að ég vilji gera h'tið úr trú og kristnihaldi líð- andi stundar. — Við eigum mynd- arlegar kirkjur, sem teygja turna sína upp í himinblámann. Við eigum ágæta, áhugasama presta, sem boða okkur lífernisbót og trú á annað líf, af áhuga og kost- gæfni. Við eigum ýmsa áhuga- sama sálarrannsóknarmenn, sem hafa gert athyglisverðar athugan- ir, er bsnda til þeirrar áttar, að eittbvað búi á bak við hinn efn- islega heim. En þrátt fyrir allt þetta, er guð ekki sá sami og hann var á dög- um Hallgríms Péturssonar. Hann er ekki lengur lífsvonin eina, — heldur eitt af mörgum þægind- um, sem við viljum ekki án vera, eins og til dæmis rafmagn, sjón- varp, sjálfvirk þvottavél, teppa- lögð íbúð og fleira þess háttar. í annan stað ber þess að gæta, að við höfum ekki þá þolinmæði til brunns að bera, sem forfeðr- um okkar og formæðrum var gef- in. — Þau kunnu að þreyja Þorr- ann og Góuna. — Og, ef ekki varð hjá því komist að deyja úr hungri, gerðu þau það án þess að mögla, af því að þau vissu — að allt, sem þau höfðu farið á mis við hér í táradalnum beið þeirra liandan grafarinnar. Nú myndu ef til vill einhverj- ir segja, að hér væri verið að fara með dár og spé, — en slíkir myndu mæla af mikilli vanþekk- ingu. — Við, sem komin erum á efri ár, höfum öll þekkt fólk, sem gat tekið hverju, sem að hönd- um bar án þess að mögla, af því, að það vissi, að allt, sem gekk andsælis fyrir því hérna megin grafarinnar, myndi það fá margfaldlega endurgoldið, þegar yfir landamærin kæmi. — Myndi nokkur atvinnulaus verkamaður eiga slíka trú, að hann geti sætt sig við atvinnuleysi sökum þess, að úr því yrði bætt þegar yfir um kæmi?, — eða myndi nokkur launamaður sætta sig viðvísitölu-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.