Ægir - 01.01.1916, Blaðsíða 19
ÆGIR
13
gang hafi vantað svo mjög þetla sumar nyrðra, enda bar nokkuð á honum við
Hrisey á »pilk«.
Fiskur sá, sem veiddur er á 60—80 fðm. dýpi á Axarfirði, Skjélfanda og Húna-
flóa (sjá staflið 5—7) er miklu fjölbreyttari að stærð og aldri og er víst dágott
dæmi uppá, hvcrnig sá fiskur er, sem veiðist á djúpmiðum á Skjálfanda á sumrin,
því að hann er tekinn holt og bolt úr aflanum1). Hjer er margt af fiskinum
málsfiskur, o: fullorðinn fiskur, 6—7 vetra og eldri og eflaust margt af honum að-
kominn flskur úr heitari sjó; þó er meiri hlutinn af þessum fiski smáfiskur, á
svipaðri stærð og aldri og smáfiskurinn á grunninu, samt ekkert af tvævetrum
fiski og ekkert mjög smátt (undir 35 cm) af þrevetrum fiski. Sýnir þetta að mikið
af smáfiski er þegar gengið til djúpanna norðanlands á 4. sumri (ef til vill vorið
sem hann er þrevetur) og lifir þar eflaust öðru hvoru, ef ekki altaf, úr því og nær-
ist þar á þeim dýrum, sem hafa þar fasta dvöl (krabbadýrum, ormum o. fl.), nema
ef síli, loðna eða aðrar ætisgöngur lokka hann inn á grunnið og þegar hann loks,
6—8 vetra gamall, fer í fyrsta sinn burtu til hrygningar í heitari sjó.
Þetta læt jeg mjer nægja að sinni. Þegar svo meira kemur af þorski tilrann-
sóknar frá ýmsum svæðum kringum landið, er líklegt. að margt megi af læra um
lífshætti hans og vona jeg, að jeg geti bætt nokkuru við i næstu skýrslu, ásamt á-
rangrinum af samskonar rannsóknum á ýsu, kola og ef til vill fleiri fiskum.
2). Við þetta bætist svo oft töluvert mikið af stórri og smárri keilu, kar{a, mest stórum,
hlýra og steinbít, svo og nokkuð af skrápkola.
Ársskýrsla fyrir 1915.
frá Ól. T. Sveinssyni.
Aðal starf mitt á þessu ári hafa verið
námskeiðin.
Daginn eftir aðalfund Fiskifjelagsins
hjer í Reykjavik, fór jeg til Seyðisfjarðar
og hjelt námskeið þar. Kom úr þeirri
ferð til Reykjavíkur 16. apríl. Til Yest-
fjarða fór jeg 12. maí, og kom úr þeirri
ferð 16. júní til Reykjavíkur. Á meðan
jcg dvaldi í Reykjavík, starfaði jeg að
undirbúningi Fiskiþingsins, og á milli
fyrri ferða, starfaði jeg að því að útbúa
frumvarp til laga um atvinnu við vjel-
gæslu á íslenskum skipum, fyrir »Vjel-
stjórafjelag íslands«, með þeim hr. skóla-
stj. stýrimannaskólans og vjelskólans.
Eftir Fiskiþingið var töluvert annríki á
slcrifstofu Qelagsins og starfaði jeg þar
eftir föngum. í ágúst fór hr. ritstjóri
»Ægis« til Siglufjarðar með mótorbát til
strandvarnar þar, og gegndi jeg skrif*
stofustörfunum á meðan.
24. september fór jeg til Vestmanna-
eyja og hjelt námskeið þar, úr þeirri
ferð kom jeg aftur til Reykjavikur 13.
nóv.
Hjer dvaldi jeg í 4 daga, og fór síðan
til Eju’arbakka og hjelt námskeið bæði
þar og á Stokkseyri. Úrþeirri ferð kom
jeg til Reykjavikur 23. desember. Svo
var jeg hjer kyrr það sem eftir var af
árinu.
A þessu ári hefi jeg haldið 4 nám-
skeið í mótor-vjelafraiði: á Seyðisfirði,