Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.1916, Blaðsíða 5

Ægir - 01.09.1916, Blaðsíða 5
ÆGIR. MÁNAÐARRIT FISKIFJELAGS ÍSLANDS arg. Reykjavík. September, 1916. Til landsmanna. Enn einu sinni er hér ítrekað og skor- að á landsmenn, að þeir sendi »Ægi« ritgerðir, tysingu á ástandi i hinum 5'msu veiðistöðum eða eitthvað er gæli orðið til fróðleiks og gagns. Þau 3 ár, sem eg hefi verið ritstjóri Ægis, hef eg, þrátt fyrir áskoranir til nianna, ekki getað aílað slíks. Menn þurfa ekki að hræðast, þótt rit- gerðin sé ekki sem bezt skrifuð, eða að réttritun sé ekki góð. Prentararnir eru duglegir að lesa skrift og prófarkir eru lesnar, að eins að efnið sé þess eðlis að nm það sé vert að skrifa, það er nóg. Put eins og Ægir, verður að innihalda hitt og annað úr öllum verstöðvum landsins og það verður fátæklegt, þegar í þvi sjást að eins ritgerðir eftir ritstjór- ann, hitt og annað um ástand og við- hurði sunnanlands, en það er ekki nóg. Deildir fiskifélagsins eru nú þegar um Mt land og þær hljóta að hafa einhver áhugamál og þau mál verður Ægir að geta um, þeirra eina rit. Ægir er ekki frekar málgagn stjórnar Fiskifjelagsins, enn allra Fiskifjelagsdeilda yfirleitt, það ei' rit alls félagsins. Eg, sem ritstjóri Ægis, finn hezt, að í ritið vantar margt og mikið, sem gæti komið að notum, en eg ra5.ð ekki við það. Á skrifstofuna koma að vísu marg- Nr. 9. ir og skýra margt fyrir mér, en skýring- ar þeirra, sem lcoma úr öðrum bygðar- lögum, sem þeir þekkja lítið, eru öðru- vísi en frá þeim, sem þar eiga heima, frá þeim verða þær ábyggilegastar og beztar. Fiskideildir eru nú yfir 30 á landinu og undarlegt væri, skyldu þær ekkert hafa, sem vert væri að rita um. Slíkt er nauðsynlegt og væri auk þess til hjálpar og stuðnings við stjórnarstörf. L)rsing á afskektum veiðistöðum er nauð- synleg og þar eð ýmislegt er sent stjórn- inni til umsagnar, væri það léttir að vita einhver deili á hinum 5rmsu stöðum, hvaðan lánbeiðnir eða eitthvað þvílíkt kynni að koma. Með þessu mætli ef til vill kippa ýmsu í lag. Virtist eillhvað vera i ólagi, mundu leiðbeiningar fáanlegar, sem gælu máske orðið að notum og borgað skriftirnar. Fau sjóplássin, sem eru í minslu sam- bandi við aðalkauptún landsins, ættu einkum að láta heyra frá sér, og þau ættu að reyna að færa sér i nyt, það sem stjórn Fiskifélagsins ávalt býður fram og það er að gefa allar þær upp- lýsingar, sem unt er, um þær fyrirspurn- ir sem fram kunna að koma, Fjelagið er ungt enn þá og hefir að ýmsra dómi starlað lítið, en almenning- ur veit lítið um staffið enn og svo var um Búnaðarfélagið fyrstu árin, það þólti ekki upp á marga fiska, en hvað er það ekki búið að gera nú? I’ólt Fiskifélagið helði ekkert gert, nema tilraunina með

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.