Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.09.1916, Qupperneq 7

Ægir - 01.09.1916, Qupperneq 7
ÆGIR 111 verið rík um langan tíma, þótt aldrei kæmi það til framkvæmda fyrri en nú. Eins og tekið er fratn í 2. gr. laga fje- lagsins, þá er tilgangurinn svo góður og um leið nauðsynlegur, að vjer vonum, að það nægi til þess, að allir þeir menn, sem stunda þenna atvinnuveg að meira eða tninna leyti, finni hvöt hjá sjer, til að styðja þenna fjelagsskap eftir megni, og fá aðra til að gera það einnig. Onnur grein laga Fiskifjelags íslands hljóðar þannig: Tilgangur fjelagsins er að styðja og eíla alt það, er verða má til framfara og umbóta í fiskiveiðum íslendinga í sjó, am og vötnum, svo þær megi verða sem arðsamastar þeim, er hafa atvinnu af þeirn, og landinu í heild sinni. Þessum lilgangi leitast fjelagið við að uá með því: a) að gefa gaum að merkilegum nýmæl- um, er verða í fiskiaðferðum og með- ferð fiskiafurða innan lands og utan, hvetja menn til að reyna þau, er við vort hæfi eru, og veita þeim verðlaun, er skara fram úr í því tilliti. Styrkja efnilega menn til þess að afta sjer þekkingar, utan lands og innan, á því, er verða mætti atvinnu þeirra eða fiskiveiðunum í heild sinni til gagns. b) A.ð gefa, eftir megni, þeim er þess óska, upplýsingar og leiðbeiningar um alt það, er getur orðið þessum at- vinnuvegi að liði. c) Að stuðla að endurbótum á lending- um og höfnum, fjölgun vita og ann- ara sjómerkja, að bjargráðum á sjó °g með ströndum fram, að góðri nieðferð á aíla og vöruvöndun, að gi’eiðari samböndum milli veiðistöðva mnanlands, og hagkvæmara sam- bands við útlenda markaði, og að öðru þvi, er bæta má hag sjáfar- manna. d) Að fræða almenning um þau málefni, er snerta fiskiveiðar og þær atvinnu- greinar, er standa i sambandi við þær, á þann hátt, er best verður við kom- ið og efni fjelagsins leyfa, svo sem með útgáfu smárita, tímarits eða öðruvisi. e) Að gæta hagsmuna og rjettar íslenskra fiskimanna og annara, er atvinnu hafa af fiskiveiðum, beinlínis eða ó- beinlíni.s, og í samvinnu við lands- stjórnina og löggjafarvaldið, leitast við að gera fiskiveiðarnar sem öruggast- ar og arðbærasta atvinnu fyrir landið. f) Að stuðla að aukinni þekking á lifs- háttum íslenskra nylsemdarfiska og vísindalegum rannsóknum á þeim at- riðum í fiskifræði, er sjerstaklega þælti áslæða til, að tilraunum með fiskiklak, að stofnun fiskiáhalda og fiskiritasafns í Reykjavík. Steinollukaup Fiskifjelagsins síðastliðið ár. Fyrir nokkru hitti maður mig á gölu og spurði mig hvað olíukaupum Fiski- fjelagsins liði. Jeg vissi ekki um nein kaup og sagði manninum eins og var, að fje væri ekki til, til slíks, en að stjórnin hefði fengið þá reynslu af olíu- sölunni síðuslu, að hún hefði skrifað velferðarnefndinni i sumar og skorað á hana að gangast fyrir olíukaupum og að nú mundi olía líklega koma í haust. Maður þessi fór þá mörgum ófögrum orðunt um stjórn tjelagsins og fjelagið í heild sinni, að alt væri sofandi og ekk- ert aðhafst; þar eð jeg sá að manninum

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.