Ægir

Årgang

Ægir - 01.09.1916, Side 17

Ægir - 01.09.1916, Side 17
ÆGIR 121 Þar voru menn sem óðast að búa báta sína út til fiskiveiðanna. Þar sá jeg nýjan bát sem smíðaður hafði verið í Færeyjum síðastliðinn vetur. Var hann mjög laglegur og vel út búinn og að mun stærri en aðrir bátar þar. Norðfirðingar eru kappsmenn miklir og er mótorbátaútvegur þeirra með einna mestum blóma hjer á landi. Græddu margir þeirra mjög mikið á útgerðiuni i fyrra sumar og er það vel farið, því þeir horfa eigi í kostnað til útvegsins. Allstaðar á landinu var sár kvörtun um erfíðleika á að fá veiðarfæri, auk hins afarháa verðs, sem á þeim er. Á suðurleiðinni var viðstaðan stult á flestum höfnum og kom jeg heim til Reykjavikur 22. maí. Matlh. Ólajsson. Hákarlaveiði. (Ný aðferð). Maður, sem hefur dvalið í Noregi nokkur ár og var hjer við fiskiveiðar í sumar, segir þær frjettir, að Norðmenn sjeu nú farnir að veiða hákarl á lóðir, og geíist slílc veiði mjög vel. Hásetar á sumum skipum höfðu alt upp að 4000 kr. hlut yfir mánaðartíma, sem veiði þessi var stunduð síðastliðinn vetur. Onglar eru svipaðir og hjer, en í fauma nota þeir mjóan vír. Reilan er hákarlinn sjálfur og lítið eitt af selspiki. Á eiði þessa var farið að stunda þegar lýsi hækkaði í verði. Maðurinn sagði ennfremur að hákarlinn væri saltaður °g fyrir hann væri markaður í Þýska- landi. Formannavísur um formenn í Grindavik á vetrar-vertíð 1866. Eftir Brynnjólf Jónsson á Minnanúpi. Niöurl. ----- 11. Svali’ ef skerðist Sveinson þá súða ferðast jónum á Jón um sverðhvalsbólin blá bygð Járngerðarstaða frá. 12. Bestum hundi hlunns um sjá Húsa — skundar — tóptum írá, mest er fundið mannval á Maltias kundi Pórði hjá. 13. Færir slyngur fley á skrið um foldarhring með öruggt lið; jafnan glingrar gæfan við Guðmund Ingimundar nið. 14. Jón er mögur Magnúsar með órögum huga snar tramm’ á högum flyðrunnar, fimur mjög lil skipstjórnar. 15. Greiptur mundum gæfunnar gelti sunda leið vísar út um grundir ýsunnar Árni kundur Guðmundar. 10. Alla talda ýta hjer essum falda með og her trúr alvaldur taki’ að sjer týnist skvaldur Ijóða mjer. 17. Ártal set í óðarskrá; átján letra hundruð má tvisvar vetur þrjátíu og þrjá, þess eg get sem stendur á. Það er gamall siður hjer á landi, að ýmsir hagyrðingar hafa skemt sjer og öðrum með því að yrkja vísur um alla formenn (formannavísur) í ýmsum veiði- stöðum eða þá um einstakar skipshafnir (hásetavisur) í veiðistöðum. Reyndar eru

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.