Ægir

Volume

Ægir - 01.09.1916, Page 20

Ægir - 01.09.1916, Page 20
124 ÆGIR Áskorun. Þeir kaupendur Ægis, sem 1. okt. flylja sig búferlum, eru vin- ' samlega beðnir að tilkynna það á skrifstofu Fiskifjelagsins hvert þeir haíi flutt, svo að ritið komist til þeirra með skilum. Ef menn að eins vildu senda ritstjóranum 3ja aura brjefspjald og rita þar á nafn sitt og heimili, ef þeir hafa flutt sig búferlum, þá greiðir það fyrir út- sendingunni í vetur, og kaupendur fá sitt með skilum, því óvíst er hvort drengjum þeim, sem bera ritið um bæinn, er sagt í’jelt lil um flutning manna og þá er ruglið komið á. Peir sem ekki fá eða hafa fengið Ægir meö skilum í sumar, eru beðnir að láta vita það á afgreiöslunni og gela þeir þar fengið þau eintök sem þá vantar í árganginn. Eins og að undanförnu fer innheimta fyrir ritið fram um miðjan nóv., verður þá innheimtumaður sendur um bæinn til áskrifenda. í síðasta tbl. Ægis var bent á, að æskilegt væri að formenn í veiðistöðum sunnanlands og austanfjalls vildu scnda Ægi leiðbeining- ar um lendingar í hinum ýmsu veiðistöðum á sunnan og austanverðu landinu. Komi eitthvað af slíkum leiðbeiningum, mundi það birt í ritinu, en æskilegust væru almenn samtök formanna, að slíkt kæmi frá sem ílestum, svo að þessu yrði safnað í eina heild. Enginn veit, hvenær hann kann að þurfa að leita lands í óþektri lendingu, og þá gæti það máske greitt úr ýmsum vandræðum og efa, að hafa með sjer lítið kver í vasanum, sem segði það sem þyrfti til þess að bjarga mönnum og skipi. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.