Ægir - 01.08.1919, Blaðsíða 19
ÆGIR
Bárður G. Tómasson
skipaverkfræðingur
ísafirði Simi nr. 10
hefir aðalumboð fyrir ísland á mótornum
„Densil”
frá Aalborg
»Densil« er tvítaksmótor, sem notar hráoliu, en ekkert vatn. Hvert stykki í
»Densil« er smíðað með nýtízku vélum, svo hver hlutur í sömu vélartegund
er nákvæmlega eins og fljótsmíðaður. Rar af leiðandi fljót afgreiðsla og lágt
verð, en alt ábyggilegt, úr fyrsta flokks efni. — Allar leiðbeiningar um breyt-
ingar á skipum og fyrirkomulagi á vélinni gefnar.
Tómas Tómasson
við Sláturfélag Suðurlands gefur upplýsingar í Reykjavík.
Original Hein-motorar
eru viðurkendir með þeim beztu motorum, sem hér eru þektir,
sérstaklega sem landmotorar og í minni báta.
Eyða mjög lítilli olíu, skila góðum krafti og eru þægilegir i
gangi.
He in-motor hefir fengið heiðurspening úr gulli á öllum síð-
ustu sýningum erlendis og ágæt meðmæli frá fagmönnum hér
á landi.
Allar nauðsynlegar upplýsingar gefur undirritaður umboðs-
niaður verksmiðjunnar.
Porgr. Sveinsson
Vatnsstíg 16.