Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.1919, Blaðsíða 3

Ægir - 01.08.1919, Blaðsíða 3
ÆGIR. MANAÐARRIT FISKIFJELAGS ÍSLANDS. 12. árg. Reykjavík, ágúst — september 1919 ] Nr. 8-9 Síldarvinnan. Sildir. er að verða ein aðalpersónan í atvinnulífi Islendinga. Af hennar völdum risa nú þorp þar sem engin voru áður. Hún ræður af frjálsu fullveldi viðgangi þeirra eða hnignun, aflar einu bæjar- i’éttinda og dregur skyndilega allan vind úr seglunum hjá öðru. Hún ræður kaup- gjaldi frá yztu annesjum til instu afdala °8 þar með hreyfingum verkalýðsins. l'jallkonan situr með vandræðasvip, nag- ar negiurnar og mælir fyrir munni sér: »Mér er um og ó, eg á síld í sjó og sauði á landi.« Hún veit varla hvort hún á að mela meira, en helzt mun hún þó á því, að reyna að halda í hvorttveggja og gefa sauðunum síld, þegar harðnar í ári. Og efiaust verður síldveiðin stunduð af kappi við ísland, meðan sú syndandi gull- 0g silfurnáma legst ekki frá land- lnu eða verður þurausin. En síldveið- arnar eru fyrir þær sakir mörgum svo nnkið umhugsunarefni, að þær eru stundaðar einmitt þann tíma ársins, sem callaður hefir verið hábjargrœðistíminn, °g keppa því við landbúnaðinn um vinnuaflið. Báðir þessir atvinnuvegir eiga a blómgast, en það getur því að eins 01 ið, að báðum nægi sá vinnukraftur sem völ er á, og hann mun nægja báð- um að sama skapi sem það tekst að gera hvern verkamann svo afkastamik- inn sem unt er. En við alla vinnu kem- ur tvent fyrst til greina: tækin og vinnu- brögðin. Því betri sem tækin eru og því hagkvæmari vinnubrögðum sem beitt er, því meiru getur hver verkamaður af- kastað, þvi færri þarf til að vinna á- kveðið verk. Þetta er einfaldur sann- leikur, en framtíð atvinnuvega vorra er undir þvi komin, að menn skilji hann og hagi sér samkvæmt honum. íslendingar hafa lært síldarveiðar og sildarvinnu af Norðmönnum, tekið upp aðferðir þeirra eins og þeir sáu þær fyrir sér. Á síðustu árum hefir hver síldarstöðin risið af annari, án þess að neitt teljandi hafi verið um það hugsað að finna hentugri tæki og aðferðir en þær sem hingað • til hafa hafðar verið. Þar fetar hver í fótspor annara. Menn eru ekki alment farnir að skilja það til hlitar enn þá, að hvaða framkvæmdir sem ráðist er í, þá borgar það sig að verja tíma og fé til að rannsaka og hugsa, áður en framkvæmt er, og að á flestum sviðum og þó einkum þar sem atvinnugrein er ung, þá er óhætt að gera ráð fyrir því, að finna má nú þeg-

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.