Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.1919, Blaðsíða 12

Ægir - 01.08.1919, Blaðsíða 12
ÆGIR Í02 botn fylgja hverri tunnn. Söltunarstúlk- an gripur botninn upp úr tunnunni, þegar hún byrjar að salta í hana, reisir hann á rönd við hliðina á henni og leggur hann yfir, þegar lokið er. Það virðist mér bezta lagið. Eg hefi þá minst á helztu atriði sild- arvinnunnar og skal nú að lokum til fróðleiks drepa á nokkur atriði, er eink- um snerta verkafólkið. Eg safnaði skýrslu um tölu og launakjör verkafólksins við síldarvinnuna á Siglufirði. Á þeim 22 stöðvum, er höfðu fastráðið verkafólk, unnu 363 karlmenn: 22 verkstjórar, 116 heykjar og dixilmenn og 225 almennir verkamenn. Mánaðarkaup bejdcja með fæði 350 kr., án fæðis 350—480 kr., eft- irvinna kr. 1,50—2,25 um klukkustund- ina. Mánaðarkaup »dixilmanna« með fæði 300—350 kr., án fæðis 265—400 kr., eftirvinna kr. 1,00—2,00 á klst. Mánaðarkaup almennra verkamanna með fæði 180—350 kr., án fæðis 200— 400 kr., eftirvinna kr. 1,00—2,00. — Gert er ráð fyrir 10 tíma vinnu á dag. Verkstjórakaup er almennast 400—500 kr. á mánuði. Alment er ókeypis hús- næði, ferðir fram og aftur og kaup goldið frá því menn fara að heirnan og utiz þeir koma heim aftur. Þeir sem fæða sig sjálfir fá alment ókeypis matreiðslu. Á sömu 22 stöðvum unnu, að með- töldum ráðskonum, 669 stúlkur. Allar liafa þær ókeypis ferðir fram og aftur, húsnæði og eldsneyti. Verkunarkonur hafa 10 kr. vikupeninga og að auki eru þeitn trygðar ýmist 200 eða 300 kr. fyrir allan tímann. Annars er kverkun og söltun ákvæðisvinna og horgað kr. 1,20 —1,50 fyrir tunnuna saltaða. í tíma- vinnu er borgað kr. 0,75 um klst. og í eftirvinnu kr. 0,75—1,50. Ráðskonur hafa í mánaðarkaup 80—300 kr. með fæði, ein 360 án fæðis. Á 8 stöðvum á Siglufirði hafa karl- menn fæði frá útgerðarmanni, á hinum stöðvunum fá þeir nálega alstaðar ó- keypis matreiðslu, en leggja efnið til sjálfir. En verkunarkonurnar hafa sína matseld hver fyrir sig, og hygg eg að jað sé yfirleitt ekki holt fyrir heilsu jeirra. Eg spurðist talsvert fyrir um tað, hvernig fæði þeirra mundi vera. Áað er auðvitað næsta misjafnt, eftir því hvernig hver er gerð, en mörgum mun fara svo, einkum þegar mest er annríkið og þær þyrftu helzt staðgóða fæðu, að þá liafa þær ekki tima né þrek til að elda sér mat, en lifa mest á brauði og kaffi. Væri það íhugunarefni, hvort eigi væri hægt að koma því svo fyrir, að útgerðin legði verkunarkonun- um fæðið.eins og karlmönnunum sum- staðar, því að mér virtust fáir hafa trú á matarfélagi kvenna, þó þær fengju ó- keypis matreiðslu. Er þess gætandi, að allmikið fé gengur nú til eldsneytis handa þeim að óþörfu, þar sem t. d. 15 »prímusar« loga til að hita kaffi handa 30 konum! Fyrir þá sem ætla að byggja ný íhúð- arhús fyrir verkafólk á síldarstöðvum, væri eflaust vert að íhuga, hvort þau hús sem hingað til hafa verið reist af þvi tæi eru eins hcntng og verða hefði mátt, fyrir það fé scm til þess hefir verið varið. Mér hugkvæmdist t. d., þegar eg kom í borðstofur í slíkum húsum, útbúnaður sem eg sá í horð- stofum barnaskólanna í Iíristjaníu, þeg- ar eg kom þar 1902. Borðstofan var af- löng og borðið nálega eftir henni endi- langri. Borðdúkurinn var vaxdúksdregill, strengdur um valta á báðum borðend- um — smeygur sem lá um borðið endi- langt, ofan á því og undir. Þegar sveif

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.