Ægir - 01.08.1919, Blaðsíða 17
ÆGIR
107
ingar gagnvart smurningunni hefir Densil-
vélin olíuhringrásardælu (Oliecirculations-
pumpe) sem stöðugt dælir smurnings-
olíunni, sem lekur úr legunum, upp í
þser aftur, svo hún sparast margfalt við
það.
Eins og sjá má af ofangreindu hefir
Densil-smiðjan gert alt til að búa til vél,
sem að öllu leyti er ábyggileg, ber gæði
ullra hinna þektu véla jafnfram því að
htiloka gallana sem iðulega voru mótor-
unum til fyrirstöðu.
Það er áreiðanlegt að Densil-mótorinn
er sú vél sem lengi heíir verið saknað
til flutninga og fiskiskipa, og væri það
óskandi, að þessi vél gæti náð því að
verða sá fyrirmyndar mótor, sem ísland
iengi hefir vanhagað um.
Skýrsla.
frá fiskideildinni „Hvöt“ á Flateyri
1918—1919.
Deilcfin hefir haldið nokkra fundi á ár-
iuu, og meðal annars tekið til meðferðar:
i- Vitamál. — Tillögur (frá nefndum
1 >essu máli):
a- Deildin telur þessar breytingar á
frumvarpi til vitabygginga, frá sjáv-
arútvegsnefnd Alþingis, bráðnauðsyn-
legar:
að Svalvogaviti sé settur á Barða og
að ef því ekki fæst framgengt, verði
Galtaviti settur á Sauðanes, — með
ljósbreytingu, er sýni grynning-
arsvæðið.
^ð öðru leyti aðhyllist deildin vita-
kerfið, að þvi er Vestfirðingafjórð-
Ung snertir.
(Samþ. á fundi 14.api\ 18).
b. Dcildin heldur fast við fyrri skoðun
sína um vitabyggingar vestanlands,
og skorar enn á ný á f jórðungsþing
og Fiskifélag íslands, að sjá um, að
vitastæði á Sauðanesi, og þó sérstak-
lega á Barða, verði rannsökuð af sér-
fræðing, áður en tekin er ákvörðun
um vitabyggingar vestanlands.
(Samþ. á fundi 16. mars 19).
c. Fiskideildin „Hvöt“ á Flateyri skorar
á Fiskifél. íslands, að leggja fram
nauðsynleg'an kostnað við að setja
upp næsta sumar greinileg leiðar-
merki á sundin í Súgandafirði, sem
orðin er brýn nauðsyn á, vegna stór-
aukinnar umferðar um fjörðinn.
2. Atvinna við siglingar.
Nefnd var kosin til að athuga þetta
mál, milli funda, og taldi hún bráðnauð-
synlegt, að auka að mun verklega kenslu
sjómanna yfir höfuð, én þó sérstaklega
að búa mótorista og fiskiformenn betur
undir slöðu þeirra, að því er verklega
fræðslu snertir, og áleit nefndin, að slík
fræðsla lianda mótoristum fengist á
tryggilegastan liátt með þvi, að láta þá
stunda verldegt nám á vélaverkstæðum
tvö til þrjú ár, sem skilyrði fyrir skír-
teini lil vélagæzlu, og sömuleiðis taldi
nefndin nauðsynlegt, að fiskiformenn
ættu kost á frekari verklegri fræðslu, en
nú á sér stað. — Svolilj. till. samþ. deild-
in í einu hljóði:
„Fundurinn skorar á fjórðungsþing og
Fiskiþing íslands, að beita sér fyrir því
við þing og stjórn, að verkleg kensla, til
undirbúnings mótoristum og skipstjórum,
sé aukin nú þegar að miklum mun, á
hvern þann hátt, er heppilegast þykir.“
Ýms mál sjávarútvegsins liafa og' verið
tekin til meðferðar á fundum deildarinn-
ar, svo sem: steinolía, salt, siglingalögin,
samningar við Breta o. fl„ og' tillögur
samþyktar i þessum málum, en óþarft