Ægir - 01.01.1923, Qupperneq 17
ÆGIR
11
Fiskiafli i Grímsey og Flatey er hér
áætlaður eftir frásögn kunnugra manna,
þvi engar skýrslur hefl eg fengið þaðan.
Annars eru hlutföllin á milli stórfisks
og smáfisks líklega ekki fullkomlega ná-
kvæm, því sumstaðar er fiskurinn salt-
aður óveginn, en reiknaður út eftir lifr-
armagninu og áætlun gerð um hve mikið
af fiskinum væri undir máli. En hlut-
föllin munu ekki langt frá lagi, því yíir-
gnæfandi var það stór fiskur, sem afl-
aðist á mótorbátana, en aftur á móti
mikið smátt á þilskipin og nokkuð á
árabáta.
Svalbarðseyri 31. des. 1022.
Páll Halldórsson
(erindreki).
Skýrsla
til Fiskifélags íslands yfir starf mitt
órið 1922.
Frá áramótum til 25. janúar vann eg
við silungaklakstöðina i Garði, sem stofn-
sett var árið 1921 eins og skýrsla sú er
eg lagði fyrir Fiskiþingið 1922 ber með
sér.
25. janúar hóf eg ferð mína til Reykja-
víkur þess erindis, að sækja um stvrk til
tilraunastöðvar með laxaklak. Áætlaði eg
kostnað þar að lútandi kr. 7 þúsund
með tilliti til þess að eg hefði einnig
hönd í bagga með silungaklakinu i Þing-
eyjarsýslu, þar sem eg ákvað að gera til-
raunina þ. e. við Laxá að Laxamýri.
Til áðurnefndra tilrauna sótti eg um
styrk til Búnaðarfélags íslands, Fiskifé-
lags Islands og búendanna að Laxamýrií
fekk eg veitingu fyrir þremur þúsundum
frá Búnaðarfélagi íslands, tveimur þús-
undum frá Fiskifélagi íslands, og einu
þúsundi frá bændum á Laxamýri. Þessi
styrkveiting hljóðar því alls upp á kr.
6.000 — sex þúsund krónur —.
Eg votta hér með Fiskifélagi íslands
mínar beztu þakkir fyrir sitt fjár-
framlag.
Frá því eg kom norður úr Reykjavík-
urferðinni sem var 10. marz, fór eg fyrst
nokkrar ferðir til undirbúnings laxaklak-
inu og var við útflutning seiða frá klak-
stöðinni í Garði; mestum hluta seiðanna
var slept i Mývatu þ. e. uni 220,000.
Þá var slept í Boðsvatn 15,000. Flutlutn
við þau seiði á mjólkurbrúsum ca. 65
km. veg og hepnaðist sá flutningur prýð-
isvel.
Einnig var slept í Vestmannsvatn 10,000,
Brunnvatn 2,000, Grænavatn 2,000, Sig-
urðarstaðatjörn 2,000, Kalborgarvatu 1,000,
Brennitjörn 1,000, Sandvatn ytra 3,000,
er það ltið eina af ofantöldum vötnum,
sem var algerlega silungslaust fyrir.
Fyrstu seiðunum var slept frá klak-
stöðinni 11. apríl, en siðustu 1. júní.
31. marz fór eg að Laxamýri og var
þar til 7. dags júlimánaðar við byggingu
laxaklakshússins. Stendur þaðhús6mín-
útna gang frá bænum Laxamýri. Húsið
er steinsteypt með torfþaki — gólfflötur
5x13 álnir, steinlimdur —; veggir eru
mikið í jörð til að varna frosti því vatn
það sem inn er leitt hefir runnið nokk-
urn spöl ofanjarðai. Eftirað valnið kem-
ur inn í húsið er það fyrst leitt gegnum
2 tunnur áður en það rennur í skifti-
stokkinn — i tunnunum er smámuln-
ingur til að hreiusa vatnið. Skiftistokk-
urinn deilir þvi í kassaraðirnar sem eru
4 og 3 kassar í hverri.
Kassarnir 12 og hafa lengd 210 sm.,
breidd 40 sm., dýpt 20 sm. og er möl á