Ægir - 01.01.1923, Page 23
ÆGIR
17
Strandferðaskip ríkissjóðs
sem verið hefir í smíðum hjá Kjöben-
havns Flydedok og Skibsværft i vetur,
hljóp af stokkunum 3. febrúar siðastl. og
hlaut þá nafnið »Esja«.
Skipið mun verða hið vandaðasta i alla
staði og skal því nú lýst nokkru nánar.
Lengd skipsins er 184 fet og breidd
30 fet, dýpt 18 fet 6 þumlungar og er tvö-
faldur boln í því öllu. Lestarrúm verður
allmikið eftir því sem gera er, þar sem
skipið á aðallega að verða með farþega-
rúmi, og það tekur upp alt milliþilfar
skipsins. Er gert ráð fyrir að skipið lesti
um 300 smálestir af allskonar vörum, og
150 smál. kolaforða getur það haft. Vélin
er um 050 I. H. K. af nýjustu og beztu
gerð, og eyðir um 8 smál. á sólarhring
með 10'/2 sjómílu ferð á klukkustund,
fullfermt.
Á miðju þilfarinu er hús fyrir borð-
salinn og íbúðarklefa yfirmanna skipsins.
Ofan á því verður annað hús, þar sem
er reykskáli, íbúð skipstjórans og loft-
skeytastöð skipsins. Par uppi yfir er svo
stjórnpallur og bestikhús. Að aftan er
annað hús og í því er borðsalur og reyk-
skáli II. farrýmis, þriðja húsið er framar-
lega á þiltarinu og er þar gengið niður
á III. farrými. Er spilinu fyrir fram-
lestina komið fyrir upp á þvi, og enn-
fremur er þar leitarljós, sem er mjög
nauðsynlegt fyrir skip eins og þetta, er
siglir i strandferðum.
Eins og áður er sagt, er skipið einkan-
lega ætlað til farþegaflutnings. Er rúm
fyrir alls 155 farþega á skipinu, þar af
63 á fyrsta farrými, 60 á öðru og 32 á
þriðja.
Á fyrsta farrými eru 6 klefar með rúmi
fyrir 2 farþega hver, og 6 fyrir 4 farþega
hver. 1 borðsal er 16 farþegum ætlað
rúm ef þröngt er og 5 í reykskála. Tveir
sérstakir sjúkraklefar eru á skipinu,
annar tekur 4 farþega og hinn 2. Bað-
klefi með kerlaug og steypibaði er þar
einnig. I borðsalnum geta 38 manns
borðað í einu.
Annað farrými er eins og áður er sagt
aftur á og eru þar 10 fjögramannaklefar
og 2 klefar með rúmi fyrir 6 farþega
hvor. í borðsal og reykskála er gert ráð
fyrir að hægt sé að búa um 8 manns.
Borðsalurinn er á þilfari og verður bæði
bjartur og rúmgóður. Reykskáli verður
við hliðina á borðsalnum, sömuleiðis á
þiifarinu. Auk þess sem þvottaáhöld verða
í hverjum klefa, verður ræstiklefi innar
af innganginum upp á þilfarinu, og enn-
fremur verður sérstakur baðklefi niðri
með steypibaði til afnota fyrir farþegana.
Á skipinu verður útbúið III. farrými
fyrir framan I. farrými. Eru þar 8 klefar,
2 tveggjamanna, 4 fjögramanna og 2 sex-
mannaklefar. 1 klefum þessum eru rúm
og þvottaáhöld, ofn o. s. frv., en í rúm-
unum eru þó eigi önnur rúmföt en mad-
ressa, og verða farþegar þvi sjálfir að
leggja sér þau til. Sérstakur borðsalur er
þar einnig. Auk þvoltaáhalda þeirra sem
eru i hverjum klefa, verður sérstakur
ræstiklefi fyrir alla þriðja farrýmis far-
þega i húsinu yfir III. farrými.
Sérstakur klefi verður útbúinn á fyrsta
og öðru farrými fyrir farþegafarangur,
og verða skipsmenn látnir taka við og
láta úti farangur fólks til þess að koma
i veg fyrir glundroða með farangurinn,
sem oft hefir átt sér stað áður.
Loftræsting verður mjög góð í skipinu,
þar sem rafmagnsvindur verða viðsvegar
um skipið tii þess að dæla hreinu lofti
niður um það alt.
Eins og sjá má af framanrituðu, hefir
hér í mörgu verið breytt til batnaðar
írá þvi sem áður var, og sérstaklega hefir