Ægir - 01.10.1923, Qupperneq 15
ÆGIR
157
á fiskiskipi, sem er stærra en 60
rúmlestir, eða verið skipstjóri (for-
maður) á skipi yfir 20 rúmlestir, og
af þeim tima minst 12 mánuði stýri-
maður á gufuskipi, ef um gufuskip
er að ræða;
c. er fullveðja;
d. hefir eigi verið dæmdur fyrir nokk-
urt það verk, er svívirðilegt er að
almenningsáliti;
e. sannar, að sjón hans sé svo full-
komin, sem nauðsynlegt er fyrir
stýrimenn.
11. gr. Rétt til að vera stýrimaður á
islenzku fiskiskipi í innan- og utanlands-
siglingum og stýrimaður á islenzku verzl-
unarskipi i innanlandssiglingum eigi yfir
300 rúmlesta að stærð, hefir sá einn,
sem fengið hefir stýrimannsskírteini á
fiskiskipi.
12. gr. Sá einn getur öðlast stýrimanns-
skirteini á fiskiskipi, er;
a. hefir staðist fiskimannapróf eða far-
mannapróf við stýrimannaskólann í
Reykjavík;
b. hefir verið háseti minst 36 mánuði
eftir 16 ára aldur, og af þeim tíma
annaðhvort 18 mánuði háseti á fiski-
skipi stærra en 60 rúmlestir eða 12
mánuði skipstjóri á skipi stærra en
20 rúmlestir og 6 mánuði háseti á
fiskiskipi stærra en 60 rúmlestir;
c. hefir eigi verið dæmdur fyrir nokk-
urt það verk, sem svívirðilegt er að
almenningsáliti;
d. sannar, að sjón hans sé svo fullkom-
in, sem nauðsynlegt er fyrir stýri-
menn;
IV. KAFLI.
Um rétt til skipstjórnar og stýrimensku
á verzlunarskipum yfir 300 rúmlesta, í
utanlandssiglingum.
13. gr. Rétt til að vera skipstjóri í ut-
anlandssiglingum á íslenzku verzlunar-
skipi og skipstjóri í innanlandssiglingum
á íslenzku verzlunarskipi, sem er stærra
en 300 rúmlesta, hefir sá einn, sem feng-
ið hefir skipstjóraskirteini i utanlands-
siglingum. Sé um gufuskip að ræða, hefir
sá einn réttinn, sem fengið hefir einnig
skírteini það, er um getur í 15. grein.
14. gr. Sá einn getur öðlast skipstjóra-
skirteini í utanlandssiglingum, er:
a. er fullveðja:
b. hefir eigi verið dæmdur fyrir nokk-
urt það verk, er svívirðilegt er að
almenningsáliti;
c. sannar, að sjón hans sé svo fullkom-
in, sem nauðsynlegt er fyrir stýri-
menn;
d. hefir staðist hið almenna stýrimanns-
próf við stýrimannaskólann í Reykja-
vík;
e. hefir verið stýrimaður eigi skemur
en 24 mánuði á verzlunarskipi i ut-
anlandssiglingum, og af þeim tíma
eigi skemur en 12 mánuði yfirstýri-
maður, eða einn stýrimaður á verzl-
unarskipi í utanlandssiglingum, eða
hefir verið 12 mánuði skipstjóri á
fiskiveiðaskipi í utan- og innanlands-
siglingum og 12 mánuði sýrimaður
á verzlunarskipi í utanlandssigling-
um.
15. gr. Sá, er öðlast hefir skipstjóra-
eða stýrimannsskírteini í utanlandssigl-
ingum, og auk þess sannar með vottorði,
að hann hafi staðist próf i gufuvélafræði
fyrir skipstjóra og stýrimenn við stýri-
mannaskólann í Reykjavík, á kost á að
fá viðaukaskírteini þessu til sönnunar
hjá stjórnarráði íslands.
16. gr. Rétt til að vera stýrimaður í
utanlandssiglingum á íslenzku verzlunar-
skipi, eða í innanlandssiglinum á íslenzku
verzlunurskipi, sem er stærra en 300
rúmlesta, hefir sá einn, sem fengið hefir