Ægir - 01.01.1930, Side 10
4
ÆGlft
ina og var þó flutt inn töluvert af síld
frá Noregi, bæði til Reykjavikur og
útgerðarstöðva við Faxaflóa, en vfirleitt
þótti sú beita gefast illa; þó fiskuðu
nokkrir bátar í Vestmananeyjum allvel
á þá beitu.
Hinn 1. apríl kom fyrsti báturinn með
síld úr Jökuldjúpinu, ca. 100 tunnur, og
var síldin seld til beitu á kr. 80.00 tn.,
en yfirleitt gekk illa að ná í síld fram
eftir öllum mánuðinum og bagaði þvi
beituleysi nokkuð. Síðast í april fór síld
að fást í lagnet í Vestmannaeyjum,
Grindavík og Keflavík.
Nokkur línuveiðagufuskipanna frá
Faxaflóa fóru til Vestmannaevja með
þorskanet þegar að kom fram í april, og
var afli þeirra tæplega í meðallagi, 20—
30 þús. stk. á slcip, og varð útkoma
þeirra skipa verri en hinna, sem liéldu
áfram línuveiðum frá Faxaflóa.
Seint í febrúarmánuði fóru vélbát-
arnir frá Reykjavík að leggja þorskanet
og' aflaðist strax vel í þau, fengu nokkr-
ir þeirra góðan afla um tíma.
í brimaveiðistöðvunum, Stokkseyri,
Eyrarbakka, Þorlákshöfn og' Grindavík,
byrjuðu róðrar ekki yfirleitt fvr en í
febrúarlok, enda var oft ókyrð í sjónum
framan af, þar sem aðalvindáttin var
S. og suðaustan; þó fiskaðist dálítið
á lóð í febrúar á Stokkseyri, en á Eyr-
arbakka og Þorlákshöfn gat varla heit-
ið að á sjó væri farið allan febrúar, og
í Þorlákshöfn var vertíðin með því léleg-
asta sem getur verið, enda hættu sumir
bátarnir þar þegar að kom fram í miðj-
an apríl, og varð vertíðaraflinn alls 88
skpd. á móti 548 skpd. árið áður. Þegar
kom fram í apríllok fóru bátarnir frá
Stokkseyri og Eyrarbakka að sækja
vestur á Grindavíkurmið, og fengu þá
ágætis afla um tíma, en yfirleitt má
samt telja, að mjög léleg hafi vertiðin
verið í veiðistöðvunum austanfjalls,
minsta kosti borið saman við aðrar
veiðistöðvar á þessu ári.
Frá Grindavík gengu 28 bátar, allir
með vél, á vertíðinni. Frman af vertíð-
'inn gaf þar sjaldan á sjó vegna brima,
þó var þar allgóður afli þegar á sjó gaf,
var um tíma í aprílmánuði albrima þar
dag eftir dag, þó að logn væri og spegil-
sléttur sjór fyrir utan. Þó varð útkoman
allgóð í Grindavík að lokum og varð
heildaraflinn þar 4325 skpd. á móti 3858
skpd. árið áður.
I Vestmannaeyjum aflaðist mjög vel
á lóðir framan af vertiðinni, og i febrú-
armánuði var þar um tíma meiri afli á
lóðir en þar hefir áður þekst, en beitu-
leysi hamlaði þar töluvert og byrjuðu
þvi ýmsir með net fyrri en annars liefði
orðið, en netaveiðin mishepnaðist hjá
mörgum bátum, og mátti yfirleitt teljast
beldur léleg', þegar það er alhugað, að
töluvert fleiri skip lögðu þar upp afla
sinn á vertíðinni en verið hefir, meðal
annars gengu þaðan 4 linuveiðagufu-
skip.
Togararnir frá Reykjavík og Hafnar-
firði fiskuðu aðallega kringum Jökul i
marzmánuði, og var þar um tíma allgóð-
ur afli. Þó var hann mun minni yfirleitt
en á þeim sömu slóðum árið áður, en í
aprílmánuði munu flestir þeirra hafa
stundað veiðar á Selvogsbanka, eins og
vant er um það leyti árs, var afli þar
mjög góður í apríl, ca. 50% meiri en 3
undanfarin ár, en varð endasleppur,
og' í byrjun maí kom síðasti togarinn
inn af Selvogsbanka og fóru þá margir
þeirra til Austurlandsins, eins og vant
er, en þar brást fiskur algjörlega, og
fiskuðu togararnir því helst i Jökul-
djúpinu og fyrir Vestfjörðum seinni
hluta vertíðarinnar.
Um haustið aflaðist allvel um tíma í