Ægir - 01.01.1930, Page 13
ÆGIR
7
Nokkrir nýjir bátar voru keyptir að eða
smíðaðir, og gamlir bátar stækkaðir eða
endurbættir.
suður eða austur fyrir land á vertiðinni
og fiskuðu þar ýmist með lóðir eða net.
3. marz er símað frá Siglufirði að bátar
fái þar alt að 6000 pd. i róðri, ef á sjó
gefur, og má það heita góður affli.
Við GrímsejT var góður afli eftir að
kom fram í aprilmánuð, einkanlega á
færi.
Yfir sumarmánuðina var ágætur afli
i flestum veiðistöðvum á Norðurlandi,
og þorskveiðar stundaðar af flestum
smærri skipum, því bæði brást rekneta-
veiðin að miklu leyti, enda ekki hægt að
stunda þá veiði með því lága verði, sem
á sildinin hefir verið undanfarandi ár,
sérstaklega er þó Siglufjörður að verða
stór framleiðslustaður fyrir saltfisk, en
þar hefir til þessa verið aðallega lögð
áliersla á sildveiðarnar, svo sem kunn-
ugt er. Þó er það mjög bagalegt fyrir af-
komu héraðsins, að fiskurinn er fluttur
út allur þaðan óverkaður, eða þá flutt-
ur til Akureyrar eða annara nærliggj-
andi staða, til verkunar, og tapast á
þennan hátt mestöll sú vinna út úr hér-
aðinu sem fer til verkunarinnar. Að
minu áliti stafar þetta frekar af gamalli
venju, og af því að þorskveiðar í stærri
stýl eru þar nokkuð nýr atvinnuvegur,
og menn því ekki komnir upp á það að
verka þar sjálfir veiði sína, heldur en af
þeirri kenningu, sem alment er haldið
fram, að rigningar séu þar svo stöðugar,
að þurkdagar séu þar ekki nægilega
margir til þess að fiskverkun þar geti
borgað sig. Þessu sama var einnig hald-
ið fram um Ólafsfjörð á sinum tíma,
meðan að allur fiskur var fluttur þaðan
óverkaður til Akureyrar, en nú eru Ól-
afsfirðingar farnir að verka mestallan
sinn fisk sjálfir og gengur allvel, og þó
mun veðrátta vera nokkuð lík á þessum
stöðum báðum.
A Húsavík var ágætisafli í júnimán-
uði og yfirleitt fram eftir sumri, og
gengu þaðan 11 bátar. Þrátt fyrir það þó
að Húsavík sé léleg höfn og liggi opin
fvrir hafsjóum, þá hefir útvegurinn
vaxið þar mikið á seinni árum, og er nú
orðið eitt af allra myndarlegustu útgerð-
arplássum á landinu, enda hefir jarð-
rækt fleygt þar fram og nýting á öllum
fiskúrgangi mjög góð.
Eins og viðast hvar annarsstaðar á
landinu hefir opnu vélbátunum („trillu-
hátunum") fjölgað mikið á Norðurlandi
á síðastl. ári, en frekar má búast við að
þeir verði víða skammæir, ef að fiskur
fer að leggjast aftur frá landinu, og
sækja þarf langt á djúphaf. En meðan
að fiskur gengur grunt upp að landinu,
eða inn á firðina, eru þeir að mörgu
leyti mjög lieppilegir og hafa mikla yfir-
burði yfir árabátana gömlu, enda út-
heimtu þeir miklu fleiri menn, og hægt
að sækja yfirleitt lengra til en var á ára-
bátunum. Auk þess er útgerð þeirra svo
kostnaðarlítil, að efnalitlum mönnum
er frekar kleyft að ráðast í þá útgerð
en stærri vélbátanna.
í veiðistöðvunum við Húnaflóa var
aflinn vfirleitt tregari en árið áður. —
Alls varð aflinn i Norðlendingafjórðungi
55.187 skpd. á móti 44893 árið áður, og
inun þetta vera mesti afli sem á land
hefir komið þar.
Austfirðir.
Undirhúningur undir þorskveiðarnar
var í byrjun ársins meiri þar en verið
hefir í mörg undanfarin ár, hátt verð
og eftirspurn mikil eftir fiski fyrstu
mánuði ársins mun þar eins og víða
annarsstaðar á landinu hafa vakið vonir
manna um bjartari framtíð á þessu