Ægir - 01.01.1930, Qupperneq 23
ÆGIR
17
Dr. A. V. Taaning sem verið hefir liér
undanfarandi ár á vegum Komm. for
Danm. Fiskeri og Havundersögelser,
var hér um tíma við aldursrann-
sóknir, á NorÖur- og Austurlandi,
var mag. sci. Árni FriSriksson látinn
halda áfram störfum dr. Taanings hér
yfir sumariS, ásamt því aS honum var
faliS aS gera rannsóknir í sambandi viS
síldveiSarnar, einkum aS rannsaka hina
svokölluSu „grænátu“, en viS þær rann-
sóknir hafa Danir látiS vinna hér i
mörg ár. í 9. tbl. Ægis þ. á. er fróöleg
grein eftir Árna Friðriksson um aldurs-
rannsóknir á þorski hér við land og vís-
ast til þeirrar greinar.
Ýmsar umbætur
á sviði fiskiveiðanna hafa verið gerð-
ar á þessu ári, t. d. hafa aldrei verið
hyggð á einu ári eins mörg frystihús til
heitugeymslu eins og' nú. Á Siglufirði
iiafa verið byggð tvö stór frystihús auk
þess að frystivélar hafa verið settar í
eitt sem þar var fvrir. Á Svalharðseyri
var hyggt eitt stórt liús, sem ýmsir út-
gerðarmenn liér sunnanlands eiga mest-
an hlutan í. Á ísafirði voru frystivélar
settar í öll húsin sem þar voru fyrir,
Ennfremur í tvö hús í Álftafirði, t í
Bolungarvík, 1 i Súgandafirði, 2 á Akra-
nesi, 2 i Keflavik og víðar.
Eftir lauslegri áætlun telst mér svo
H1 að um 2 millíónir krónur hafi verið
á þessu ári fest í frystihúsum og hreyt-
ingu á þeim sem fyrir voru.
Mjög myndarleg fiskimjölsverksmiðja
var á árinu hyggð á Siglufirði og tók
])ar til starfa í ágústmánuði. Sömuleið-
is var fiskmjölsverksmiðjan á fsafirði
endurhætt, og áliugi er víðar vaknaður
fyrir þvi að koma upp slikum verk-
smiðjum, enda eru nú augu manna
stöðugt að opnast fyrir þeiri’i nauðsyn
að nota afurðirnar senx hezt, enda eru
menn nú farnir að sjá að fleira er verð-
mælt af fiskinum en boluninn einn.
Sömuleiðis Iicfir Sláturfélag Suður-
lands hyggt niðursuðuverksmiðju á ár-
inu, og þó að lienni sé aðallega ætlað
að vinna við niðursuðu á keti eða öðr-
um landbúnaðarvörum, þá hafa þeir þó
jafnframt soðið niður nokkuð af fiski
og eftir þeixn sýnisliornum senx ég hefi
séð þaðan þá þolir það fyllilega saman-
hurð við útlendar vei’ksmiðjur, sem
vinna á þvi sviði, og væri óskandi að
þessi tilraun Sláturfélagsins gæti orðið
til þess að við legðum niður þann am-
lóðahátt að flytja niðursoðinn fisk inn
í landið, samtímis því sem við erum að
kafna undir aukinni framleiðslu og í
vandræðunx með að finna kaupendur
að okkar eigin fiski.
f Keflavík hefir Elías Þorsteinsson og
félagar lians hyggt nýja steinbryggju á-
samt fiskhúsum fyrir afgreiðslu háta
sinna og víða hafa fiskhús og lifra-
hræðslustöðvar verið endurhætt mikið á
þessu ári.
Það má telja til umhóta á sviði fiski-
veiðanna að þrjár þráðlausar talsíma-
stöðvar hafa verið settar upp á Norður-
landi, ein í Grimsey, önnur i Flatey og
sú þriðja á Húsavík, og vinna þær allar
í sambandi livor við aðra.
Fiskbirgðir.
Tafla I\r. sýnir fiskhirgðirnár hér á
landi og í Noregi nú um áramótin, og
samanborið við nokkur undanfarandi
ár, eftir því eru hirgðirnar á þessunx
stöðum ekki svo miklar að óttast þurfi
verðfall af þeim ástæðum. Það skal tek-
ið fram, að birgðirnar í Noregi 1. janú-
ar 1929 eru teknar eftir ágizkun, en
reyndust að vera yfir 80 þús. skpd., er
þar sem þær voru taldar þetta á árs-