Ægir - 01.01.1930, Blaðsíða 26
V-----------------------------------------------
7 Aðalfundur Fiskifélags íslands 1930.
Árið 1930, fimmtudaginn 9. janúar,
var aðalfundur Fiskifélags íslands sett-
ur í Kaupþingssal í Eimskipafélagshús-
inu og iiófst fundurinn kl. 114 e. h.
Forseti, Kr. Bergsson setti fundinn og
staklc hann upp á Þorsteini skipstjóra
í Þórshamri sem fundarstjóra og var
liann samþvkktur. Hann stakk upp á
Arnór Guðmundssyni til að vera ritari
á fundinum og var liann samþykktur.
Fundarstjóri rannsakaði, að löglega
væri til fundarins boðað og lýsti hann
yfir því, að svo væri.
Lýsti fundarstjóri þá yfir að gengið
yrði til dagskrár, sem væri svoliljóð-
andi:
1. Forseti gerir grein fyrir störfum fé-
lagsins á liðnu ári.
2. Störf Fiskifélagsins (vélfræðingur,
fiskifræðingur, verkleg og vísindaleg
störf).
3. Lagabreytingar.
4. Húsbyggingarmál félagsins.
5. Ýms önnur mál, sem upp kunna að
verða borin.
Fundarstjóri gaf því næst forseta orð-
ið og gaf hann itarlega skýrslu um störf
félagsins á árinu 1929, um deildir þess
og félagatölu. Hann minntist 3ja látinna
félaga, þeirra: Þorl. Jónssonar póst-
meistara, Gunnars kaupmanns Gunnars-
sonar og Siglivats Bjarnasonar, fyrv.
bankastjóra. Stóðu fundarmenn upp úr
sætum sínum til virðingar binum látnu.
Því næst las forseti upp aðalreikning
félagsins og reikning búsbyggingarsjóðs
þess fyrir árið 1929 og skýrði einstaka
liði aðalreikningsins.
Engar umræður urðu um skýrslu for-
seta, en fundarstjóri beindi þvi til fiski-
þingmanna, að vel virtist bonum að
þingið mætti skerða sjóð félagsins til
nvtsamlegra framkvæmda samkv. til-
gangi Fiskifélagsins.
Þá var tekið fyrir 2 mál á dagskránni.
1. Störf Fiskifélagsins (verkfræðingar
o. s. frv.
Forseti gat þess, að komið befði fram
kröfur um aukna starfsemi félagsins.
M. a. um að félagið hefði í þjónustu
sinni vélfræðing lil þess að leiðbeina út-
vegsmönnum um kaup yéla o. fl. Hann
gat þess, að stjórn félagsins liefði á fjár-
hagsáætlun þess fyrir árið 1931 gert ráð
fyrir því, að slíkur ráðunautur j'rði nú
tekinn í þjónustu félagsins, m. a. til þess
að samræma námskeið félagsins i
mótorfræði og' leiðbeina á þeim. Þá
ræddi bann um að sameina fullkominn
skóla vélstjóra og stýrimannaskólann og
bæta þar við kenslu i matreiðslu eftir
kröfum útvegsins bér. Þá las bann upp
tillögur þær, er síðasta fjórðungsþing
Vestfjarða liafðí gert um breytingar á
starfstilbögun Fiskifélagsins og lýsti
skoðun sinni á því máli.
Ölafur Gíslason framkvæmdarstjóri í
Viðey taldi að Fiskifélag'ið liefði ekki
beitt sér eins mikið fvrir fiskirannsókn
og æskilegt væri, því hann teldi þar
mjög mikilsvert mál, sem varðaði mjög
sjávarútveginn og um leið alla, sem at-
vinnu bafa af honum. Benti á að
strandvarnarskipum ríkisins vrði sennil.
fjölgað og' taldi þá æskilegt að eitthvað
varðskipanna yrði útbúið með tækjum
og plássi í skipinu til rannsóknanna og
gæti þá eitt skip gefið sig' að rannsókn-
unum tima á ári, án þess að landhelgis-
gæzlan biði lmekk við það. Vonaði að
Alþing og' Fiskiþing tæki höndum sam-
an um þetta mál.