Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1930, Blaðsíða 18

Ægir - 01.04.1930, Blaðsíða 18
84 ÆGIR stafanir af þessu tagi gætu víðar orðið til þess að auka saltfisksölu, en því niið- ur er það ekki á okkar valdi að koma slíkum ráðstöfunum i framkvæmd. Þó er ekki að vila nema góð viðskiftasambönd okkar gætu áorkað einliverju um slíkt, og ættu því útflvtjendur og aðrir, sem kvnnu að hafa aðstöðu til þess að breita áhrifum sínum lil þess að vekja áhuga erlendis fyrir þeim ráðstöfunum, sem gætu orðið til þess að auka saltfisks- neyslu. Eflaust gætu auglýsingar orðið að gagni í þcssu skvni. Máttur þeirra cr við- urkend staðreynd á vorum dögum. Á síð- ast liðnum vetri var það rætt að Island tæki þátt í liinni miklu sýningu í Barce- lona, og skildist mér að sú þátttaka ætti aðallega eða eingöngu að stefna að þvi að auglýsa rækilega íslenzkan saltfisk. Búist var við að kostnaður við þetta vrði 2—300 þúsund krónur og virtist sú upp- hæð ekki vaxa i augum ríkisstjórnar- innar eða þjóðarinnar, lieldur mun liafa verið liætt við þátttökuna að því árang- urinn af sýningunni þótti vafasamur. En mikið mætti gjöra fvrir þessa eða lægri upphæð í auðlýsingaskyni, á annan hátt. Mér dettur i hug að ríkið ætli að kosta stultar áberandi auglýsingar um íslenzk- an fisk i hlöðum markaðshæjanna og koma fyrir stuttum uþphrópunum á strætisvögnum eða öðrum áherandi slöð- um. Ennfremur að semja mætti og prenta á máli viðkomandi landa litla, fallega auglýsingarhók (hrochure) um fiskinn og fá seljendur þar til að úthýta henni. Það er talið víst að ýmsar ,stórar vörutegundir hafi náð hylli almennings með svipuðum hætti, og svo mikið er víst, að mikið eru þessar aðfcrðir notað- ar i því skyni að kynna fólkinu góða vöru. Af því ég minnist á auglýsingárnar, þá álit ég ekki rétt að þegja um hugmvnd, sem ég fékk í Barcelona í vor. Ég var á nautaati, hinni þjóðlegustu iþrótt Spán- verja. Mér datt í hug þjóðlegasta iþrótt okkar íslendinga, glíman. Hvernig færu leikar ef afhurða glímumaður islenskur, legði í eitt af þessum nautum? Mundi hann geta lagt það að velli, snúið það niður? Spönsku nautin, sem koma fram á þessum mótum, eru sérstaklega uppal- in til þess. Þau eru stríðalin, æst upp og gerð mannýg, og eru því eflausl miklu verri viðfangs en íslenzk naut, þó miðað væri við þau stærstu. En ég liefi séð snú- in niður stór, íslensk naut og veil að kjarkgóðum meðalmanni hcfir ekki orð- ið það erfitt. Afhurðaglimumaður á að geta gjört miklu hetur, hann hefir vits- muni, kjark, snarræði, afl, fimleik og æf- ingu i að einheita þessum eiginleikum öllum i einu, líklega á hluta úr sekúndu. Hann hefir alla yfirhurði fram yfir naut- ið nema likamsaflið og þungann. Naut- ið ætti að ligga á hryggnum áður en það er húið að átta sig. Ég sá nautabanana (matadorana) fást við nauti'n. Nautin réðust að þeim, en þeir hreiddu úr hinu rauða klæði sínu og skutust til Idiðar sjálfir. Nautin gjörðu margar atrennur, smugu undir liandar- krika mattadoranna, strukust þétt að þeim en gripu altaf i tómt, réðust aðeins á klæðið. Þau urðu rugluð og reyndu að átta sig, þá noluðu nautahanarnir tæki- færið til J)ess að vega að þeim með örv- um eða korða. Þau augnablik voru vel fallin til að leggja þau að velli. Hvað mundu þessi 30—40 þúsund manna segja cf glimumaður réðist inn á sviðið og fleygði þessum tröllmögnuðu graðung- um til jarðar? Slíkt afrek myndi áreið- anlega vekja aðdáun og verða lengi í minnum tiaft. Og þessi maður væri úr landi saltfiskjarins og liefði unnið að

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.