Ægir - 01.04.1931, Síða 6
76
ÆGIR
„Ráðning íslenzkra sjómanna á erlend skip“.
Frá atvinnumálaráðuneytinu, hefur ritstjóra »Ægis« borist eftirfylgjandi bréf og
skýringar, út af grein um ráðningu islenzkra sjómanna á erlend skip i 3. tölubl.
»Ægis« þ. á. og þykir sjálfsagt að birta það hér svo sjómenn viti hvað er að gerast
og hvað gert hefur verið í máli þvi, sem greinin hljóðar um.
FORSÆTISRÁÐHERRA.
Herra ritstjóri Sveinbjörn Egilson
Reykjavik.
Út af grein yðar, herra ritstjóri, í 3.
tbl. Ægis 1931, »Ráðning íslenzkra sjó-
manna á erlend skip«, leyfir ráðuneytið
sér að senda yður eitt endurrit afsamn-
ingi er gerður hefur verið milli íslands
og Noregs, og gekk í gildi 30. okt. s. 1.
um gagnkvæmi við bætur fyrir slys
við vinnu. Jafnframt skal þess getið, að
frá þvi 1. nóv. s. 1., hefur samskonar
samningur verið í gildi inilli íslands og
Svíþjóðar (sbr. Stjórnartíðindi 1930, bls.
286—287) og frá 13. október 1927 milli
íslands og Danmerkur (sbr. Stj.tíð. 1927,
bls. 199-200).
Með samningum þessum er islen^kum
sjómönnum, er sigla með dönskum, norsk-
um, eða sænskum skipum, trjrggður sami
réttur til bóta fyrir slys, og þegnum þess
lands er skipið tilheyrir.
t*að skal einnig tekið fram, að fyrst-
net'ndur samningur verður birtur í næsta
hefti sem út kemur af Stjórnartíðindunum.
F. h. r.
e. u.
Stefán Þorvarðsson.
Með því að hinni konunglegu íslenzku
stjórn og hinni konunglegu norsku stjórn
hefur virst hagkvæmt að tryggja ríkis-
borgurum í hinu landinu rétt til bóta
fyrir slys við vinnu, hafa undirritaðir, er
þar til hafa gilt umboð, gert með sér
eftirfylgjandi samkomulag.
i.
Með því að íslenzku lögin um slysa-
tryggingar, nr. 73 frá 7. maí 1828 ekki
setja skilyrði um þjóðerni eða bústað
þeirra einstaklinga er samkvæmt lögun-
um eiga rétt á bótum, er því hér með
heitið, að hin konunglega íslenzka stjórn
mun veita norskum ríkisborgurum, án
tillils til bústaðar, sama rétt til bóta sem
íslenzkum ríkisborgurum.
Da den Kgl. íslandske regjering ogden
Kgl. norske regjering har funnet det hen-
siktsmessig St sikre statborgere i det ann-
et land rett til erstatning for skade, for-
voldt ved arbeide, har vi undertegnede,
som er utrustet med behörig fullmakt
dertil ingátt fölgende overenskomst:
I.
Da den islandske lov om ulykkesfor-
sikring, nr. 73 av 7. mai 1928 ikke stiller
betingelser med Hensyn til de personers
nasjonalitet eller bopel som ifölge loven
har rett lil erstatning, blir det herved
gitt tilsagn om, at den Kgl. islandske re-
gjering vil gi norske statsborgere, uten
hensyn til bopel, samme rett til erstat-
ning som islandske statsborgere.