Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1931, Blaðsíða 19

Ægir - 01.04.1931, Blaðsíða 19
ÆGIR 89 fellingur«, »Konráð« frá Flatey og »Á- fram« frá Viðey. Skeð getur að fleiri mót- orskip séu eingöngu við vöruflutninga, þó að það sjáist ekki á skipaskránni. Enn um tryggingar; fisktökumenn o. fl. 1 sambandi við það, sem áður er minnst á, um nauðsyn á tryggingu sjómanna á erlendum skipum, þá mætti hér minn- ast á litinn hóp manna, sem ekki má þar verða útundan. Sá hópur eru fiskitökumenn þeir, sem fara með erlendum skipum fram með ströndum landsins fyrir fiskkaupmenn hér, veita fiski þeim sem keyptur er í öðrum kauptúnum móttöku og hafa auk þess að jafnaðí það starf á hendi, sem ekki má telja til fisktöku fyrír kaup- menn, heldur vinnu i skipsins þarfir, þar sem þeir eru oftast kvaddir til að ■vera leiðsögumenn skipanna, séu þau stödd á þeim stöðum, þar sem skipstjór- ar eru eigi hárvissir og einnig geta al- ókunnugir skipstjórar verið á skipum á þessum hringferðum, sem að öllu leyli reiða sig á kunnugleik fisktökumannanna, allan þann tíma, sem ferð stendur yfir. Fisktökumenn ætti að lögskrá til ferðar °g þeir ættu að sæta sömu réttindum og aðrir skipsmenn, þar sem þeir eru notaðir í skipsins þarfir, þegar mest ríð- ur á og þeir vita betur en aðrir, hvernig koma á skipi áleiðis hættuminnst eða rneð öðrum orðum, »fisktökumaðurinn er bezti maður á skipinu«. Að visu eru þeir kauplausir menn á því, eða frá því, þótt sumir heiðarlegir akipstjórar, sem kunna sig, víki að þeim ookkrum krónum, við enda ferðar, þeg- ar þeir hafa sparað fyrir þá kol í tugum tonna, er þeir hafa skolið skipinu inn í einhverja víkina í skammdeginu og forðað frá brakningum á rúmsjó og máske sjótjóni, en svo eru til þeir lúsa- blesar, sem ekki tima af eyrir að sjá og reyna að heimfæra leiðsöguna upp áeitt af skylduverkum fisktökumanna, sem slíkum, reyna að smokka sér út úr þeirri plágu að þurfa að láta eyrir úti fyrir vel unnið starf, sem fisktökumaður var alls ekki skyldur iil að inna af hendi. Þegar skipið »Balholm« fórst með öllu, var að vísu enginn fisktökumaður á þvi, en það var að eins vegna ófyrirsjáan- legra atvika að hann var þar ekki og í tölu þeírra, sem fórust. Nóttina milli 21.—22. janúar s. 1., fórst skipið »Ulv« fyrir utan »Strandir«. Með því var fisktökumaður Ólafur Guðmunds- son skipstjóri og lét hann líf sitt þar. Ekki mun hann teljast til skipsmanna, svo þar koma engar dánarbælur til greina, en er nú ekki kominn tími til að hugsa eitthvað um gang þessa máls og láta sorgleg tilfelli kvetja til aðgerða. Það virðist svo, sem fisktökumenn á skipum hafi ærið að starfa, bæði likamlega vinnu og skriftir og ábyrgð þeirra er mikil, þó mun varla heyrast, að þeir séu ekki boðnir og búnir að leiðbeina skipstjór- um á ferðum og eyða oft heilum nótt- um á »brúnni«. Fyrir það á skipstjóri að greiða nema öðruvísi sé um samið og greiðslan til fiskitökumanns komi annarsstaðar frá fyrir yfirtíðina. Sá maður, sem þannig verður að gefa sig í þjónustu skipsins, hvenær sem kallið kemur, hlýtur að teljast því tilheyrandi á ferðinni og ætti því að vera lögskráð- ur sem »kunnugur maðura og dánar- hætur ættu að greiðast, færist skip og fólk. Eins og flestum við sjávarsíðuna hér

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.