Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1931, Blaðsíða 9

Ægir - 01.04.1931, Blaðsíða 9
ÆGIR 79 Ðeinlaus fiskur. Eftir styrkþega Fiskifélagsins Þórð Þorbjarnárson, er stundar nám við Dalhousie háskólann í Halifax. Pað er einkenni á heimsmarkaðinum, að varningur, sem þangað berst á sér æíi, langa eða skamma eftir atvikum. Varningurinn berst á markaðinn fyrir til- stilli einhvers framtakssams manns, þar öðlast hann vinsældir, nær hámarki gengis síns og heldur því unz aðrir hlutir koma fram, sem rýma honum burt smátt og smátt unz hann dettur úr sögunni að fullu og öllu. Allur varningur á sér æfi, en lengd hennar er undir því komin hve heilbrigður grundvöllur sá er, sem fram- leiðsla hans er byggð á. Fyrir nokkrum árum barst beinlaus frostfiskur á markaðinn í N-Ameríku, vinsældir hans og útbreiðsla hafa verið með fádæmum. Árið 1926 voru framleidd i Bandaríkjunum einum 18000.000 Ibs. af pökkuðum fiski, en 1928 var þessi tala orðin 65.000.000 lbs. eða hafði meir en þrefaldast á tveim árum. Pakkaður fisk- ur er reyndar ekki allur beinlaus frost- fiskur, en sú framleiðsluaukning, sem varð á árunum 1926—1928, var mestöil honum að þakka. Maður getur ekki gengið þess dulinn, að vará, sem þannig ryður sér til rúms á örskömmum tíma, hlýtur að vera einhverjum áberandi kost- um búin, enda er því þannig farið með beinlausan fisk. Ef til vill ber nauðsyn til að skýra hvað átt er við með beinlausum fiski áður en lengra er farið. Læt ég nægia að gela þess, að með beinlausum fiski er átt við vöðvana báðumegin úr beinagrind fisksins þegar tekið hefur verið af þeim roðið. Það þarf ekki að orðlengja um þægindin, sem þessari verkun eru sam- fara fyrir kaupendurna, þau geta allir gert sér í hugarlund, en hitt er mönn- um ekki eins kunnugt að framleiðslu- kostnaður við beinlausan frostfisk þarf ekki að vera neinu meiri, en við frystan slægðan fisk. Hvernig á þessu stendur mun ég reyna að gera grein fyrir hér á eftir. »Brint»-frysting hefur á seinni árum rutt sér svo mjög til rúms við frystingu fiskjar, að það má heita, að vart séu aðrar aðferðir notaðar á sumum stöðum. Nákvæmar vísindalegar rannsóknir hafa sýnt fram á, að við frystingu í »brine« er þykkt hlutarins, sem frystur er í réttu hlutfalli við rótina af tímanum.sem þarf til frystingarinnar (Þ2=tXk). Það liggur í augum uppi, að því þynnri sem hlut- urinn er, því skemmri tíma tiltölulega þarf til frystingarinnar. Petta færa menn sér í nyt. Við frystingu beinlauss fiskjar koma í stað hvers heils fiskjar tvær þunnar kökur, sem hvor um sig hafa ekki hálfa þykkt upprunalega fiskjarins, en afleiðingin er sú, að það þarf fjórum sinnum skemmri tíma til að frysta hverja þeirra, en slægða fiskinn, sem þær eru skornar af. Tímasparnaðurinn við fryst- inguna er þvi augsýnilega gífurlegur, enda er hann ein af þeim máttarstoðum, sem lyfthafa undir framleiðslu beinlauss fiskjar. í löndum þar sem farmgjöld eru há, eða ekki verður notast við annað, en dýran flutning, ríður á miklu, að varn- ingi sé ekki iþyngt með óþarfa. Beinlaus fiskur fer i þessu tilliti eins langt og komist verður. Sé borin saman ílutnings- kostnaður við hann og venjulegan slægð- an fisk, þá mun munurinn vera allt að

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.