Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1931, Blaðsíða 12

Ægir - 01.04.1931, Blaðsíða 12
82 ÆGIR Nýir heimar fundnir í 150 miljóna Ijósára fjarlægð. Rannsóknir Shapley’s, Hubbley’s og Lundmark’s Hvað er heimurinn stór? Svo hafa menn spurt að minnsta kosti siðan þeir fóru að hafa tæki til þess að mæla og áætla fjarlægðir í geimnum. Menn höfðu til skamms tíma hugsað sér alheiminn óendanlegan, en nú hafa visindin horfið frá þeirri hugmynd, í því formi að minnsta kosti, sem hún hafði áður. Hugmyndir manna um fjarlægðir í geimnum hafa einnig breyzt mikið seinustu árin. Um aldamótin var það algengast, að hugsa sér það stjarnasafn, sem kallað er al- heimurinn, frá 6 til 10 þúsund Ijósára vítt, en ljósár er sá tími, sem ljósið fer á einu ári, Rannsóknir ýmsra ungra stjörnufræðinga hafa nú seinustu árin, og einkum árið 1930, þótt leiða það í ljós, að menn hafi áður áætlað fjarlægðir alheimsins alltof litlar. Það er einkum ameriskur stjörnufræðingur, dr. Shapley, prófessor við Haward háskóla, sem rann- sakað hefur þessi efni. Hann áætlaði (1920) þvermál þess sólkerfasafns, sem þá var þekkt, kringum 300 þúsund ljós- ár. Fram að 1923 þektu menn ekki með vissu neitt stjörnukerfi utan þess sól- kerfasafns, sem svonefndur okkar heim- ur tilheyrir. Hinsvegar þektu inenn hin- ar svonefndu stjörnuþokur. En 1923 komst Shapley að því, að ein þessi »stjörnuþoka« var ekki til í þeim skiln- ingi, sem stjörnufræðin hafði áður haft, heldur var um að ræða nýjan »alheim«, nýtt, sjálfstætt stjörnusafn isvosem milj. ljósára fjarlægð frá okkar stjörnukerfi. Árið 1925 sannaði stjórnufræðingurinn Hubbel einnig, að sveipþokurnar svo- nefndu væru i raun réttri alls ekki »þok- ur« heldur einnig sjálfstæð stjörnusöfn í óskaplegri fjarlægð. Þannig hefur heimurinn stækkað stór- kostlega síðustu fimm til sex árin i með- vitund mannanna. Fað er stærsti stjörnu- kíkir heimsins (á Mont Wilson í Ame- ríku), sem hefur orðið til þess, að stjörnu- fræðingar hafa getað sannað þessar kenn- ingar og komist lengra út í órafjarlægðir alheimsins. Auk Ameríkumannanna sem nefndir voru, hefur Sviinn Lundmark lagt drjúgan skerf til þessara rannsókna og dr. Wolf og aðrir hafa tekið af hin- um fjarlægu stjörnusöfnum merkilegar myndir. Siðustu athuganir Shapleys eru um þokurnar i Centaurus. Niðurstaðan er sú, að þar hefur fundist heilt safn af sól- kerfasöfnum (galaxies) í svo óskaplegri fjarlægð og svo afskaplega viðáttumikil, að maðurinn hefur aldrei áður haft nokk- urn grun um slík undur alheimsins. Centaurus-»þokan« er sem sé í svo sem 150 milj. ljósára fjarlægð héðan og þver- mál hennar, þar sem það er breiðast, er um sjö miljónir ljósára. í »þokunni« eiga að vera um tvö þúsund sjálfstæð sól- kerfasöfn. Menn hugsa sér nú rúmið (eða rúm- timann, samkvæmt Einsteinskenningu), eins og úthaf og sólkerfasöfnin í því eins og eyjar og meginlönd. Eitt af megin- löndunum er það, sem sólkerfi okkar tilheyrir. En þaðan sézt hilla undir undra- lönd nýrra og nýrra landa — í 150 milj- óna Ijósárafjarlægð. »Lögrétla« Aths. Ljósár er sú vegalengd, sem ljósið fer á einu ári, en hraði þess eru 300 þúsundir kílometrar á sekúndu.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.