Ægir - 01.04.1931, Síða 17
ÆGIR
87
1 mótorskip 8.500 tons fyrir L Kjöle
í Oslo.
1 mótorskip 8.000 tons fyrir Fearnley
& Eger i Oslo.
Fréttir frá Newfoundlandi. í febrúar
var ný sjávarútvegsnefnd (»Board of
Trade«) kosin i St. Johns, og hið fyrsta
sem hún tók sér fyrir hendur, var að
leggja fram frumvarp til eflingar hetri
meðferðar á fiski, samvinnu þeirra er
flytja út fisk, sem leiða myndi at sér
betri sölu. Nefndin leggur áherzlu á, að
fiskur sé flokkaður eftir þeim kröfum,
sem hinir ýmsu fiskmarkaðsstaðir setja.
Þetta hefir áður verið reynt, en mistek-
ist sökum þess, hve ósamtaka útflytjend-
ur hafa verið og engin lög, sem fyrir-
skipuðu að fylgja þar föstum reglum.
Þess er vænst, að þegar þingið (Parla-
mentið) kemur saman í vor, muni hin
nýstofnaða sjávarútvegsnefnd gera allt
það, er í hennar valdi stendur, til þess
lög verði sett, sem fyrirskipi fiskimaf og
fastar reglur, hverjum allir þeir er verka
fisk verða að fylgja.
Búist er við því, að fiskveiðarnar gefi
meira af sér í ár, en síðastliðið ár. Að
visu er verð á fiski lágt, en þess ber að
gæta, að vörur til útgerðar, bæði mat-
væli og veiðarfæri og annað til reksturs,
hefir lækkað í verði og auk þess verður
fyrra árs fiskur að mestu seldur áður
nýjar birgðir koma á markaðinn. —
(Danska aðal-konsulatið i Montreal).
Verzlunarfloti Norðurlanda. »Norsk
Veritasa hefur nú gefið út skrá yfir verzl-
nnarskipastól Norðurlanda eins og hann
Var um nýjár 1931.
Samkvæmt þeirri skipaskrá, eru verzl-
^narskip Noregs 1966 að tölu, samtals
hrútto lestir 3.8U8.018.
Sænsku verzlunarskipin eru 1432 sam-
tals 1.643.646 brútto lestir.
Danski verzlunarflotinn er 734 skip,
samtals 1.123.086 brútto lestir.
Þar næst er Finnland með 356 skip,
samtals 310.875 brútto lestir ogaðlokum
er ísland talið að eiga 77 skip, samtals
29.253 brútto lestir. Skrá þessi telur ekki
skip undir 100 lestum br. Eigi er auðið
að sjá hvernig útgefendur fá út töluna
77 skip, sem teljast eiga verzlunarfloti
landsins. Um nýár 1931, eru gufnskip
talin 95 alls í skipaskrá rikisins, og eru
vöruflutninga- og farþegaskip, togararog
línnveiða-gufuskip. Nærritölunni 77 verzl-
unarskip, má komast með því að telja
öll íslenzk skip sem fara milli landa með
hverskonar vörur sem eru, þar með taldir
togarar með eigin afla.
Haustið 1930 er skipastóll landsinsþessi:
G u f u s k i p.
1000-2000 1. br. 5 tals 7.351 1. br.
500-10U0 1. br. 5 — 3.700 1. br.
100- 500 1. br.62 - 16 944 I. br.
50— 100 I. br. 23 — 1.825 I. br.
Samtals 95 tals 29.8A) 1. br.
M óto r skip.
100 — 500 1. br, 3 tals 900 I. br.
50-100 1. br. 16 — 972 1. br.
30- 50 I. br. 67 — 2.556 1. br.
12- 30 1. br. 189 — 3.359 1. br.
undir 12 1. br. 361 — 2.536 1. br.
ótilgreind stærð 17 — ?
Samtals 653 tals 10.323 1. br.
Seglskip.
50-100 1. br. 2 lals 104 1. br.
30— 50 1. br. 2 — 77 1. br.
12- 30 1. br. 2 — 46 I. br.
Samtals 6 tals 227 1. br.
Allur þorrinn af þessum skipum eru
fiskiskip.